Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Blindrafélagið 8. október 2026 09:38 Með kaupum á happdrættismiða styður almenningur við fjölbreytt starf Blindrafélagsins og hjálpar félaginu að skapa blindu og sjónskertu fólki á öllum aldri tækifæri til þátttöku, hreyfingar, félagslífs og samveru. Vetrarhappdrætti Blindrafélagsins er farið af stað og að venju eru fjölmargir veglegir vinningar í boði. Á bak við happdrættið er þó stærra markmið. Með kaupum á miða styður almenningur við fjölbreytt starf Blindrafélagsins og hjálpar félaginu að skapa blindu og sjónskertu fólki á öllum aldri tækifæri til þátttöku, hreyfingar, félagslífs og samveru. „
Við erum með sumar- og vetrarhappdrætti á hverju ári. Þetta er mikilvægur liður í fjáröflun okkar, enda reiðum við okkur að mestu leyti á sjálfsaflafé,“ segir Sigþór U. Hallfreðsson, formaður Blindrafélagsins. „Opinber stuðningur við félög eins og okkar er ákaflega lítill, þannig að velvilji almennings er það sem heldur okkur gangandi.“ Bíll, ferðavinningar, símar og fjölmargt fleira Ekki ætti að þurfa að kvarta yfir vinningunum í vetrarhappdrættinu í ár. Alls verða 221 skattfrjáls vinningur dregnir út að heildarverðmæti rúmlega 46,8 milljónir króna. Stærsti vinningurinn er rafknúinn Volkswagen ID. Polo frá Heklu að verðmæti tæplega 5,5 milljónir króna. Þá eru meðal annars í boði ferðavinningar frá Heimsferðum, gjafabréf frá Erninum, 66°Norður og Útilíf, Bónusgjafakort og fjöldi Samsung-síma og spjaldtölva. „Það eru veglegir vinningar og alveg þess virði að taka þátt. En um leið og fólk kaupir miða er það að styðja við allt okkar starf,“ segir Sigþór en dregið verður í happdrættinu 15. desember. Þú getur nælt þér í miða í vetrarhappdrætti Blindrafélagsins með því að smella hér! „Opinber stuðningur við félög eins og okkar er ákaflega lítill, þannig að velvilji almennings er það sem heldur okkur gangandi,“ segir Sigþór U. Hallfreðsson, formaður Blindrafélagsins. Um hundrað ár á milli þeirra yngstu og elstu Félagsstarf Blindrafélagsins er umfangsmikið, enda spannar aldur þeirra sem tengjast félaginu nánast heila öld. Þegar um börn og ungmenni undir 18 ára aldri er að ræða gerist foreldri eða forráðamaður aðili að félaginu fyrir þeirra hönd. Á sama tíma leitar fólk oft til Blindrafélagsins eftir að hafa misst sjón eða orðið sjónskert síðar á ævinni. „Það má nánast segja að um hundrað ár séu á milli þess yngsta og elsta hjá okkur. Við erum því að skipuleggja og halda úti félagsstarfi og veita stuðning fyrir mjög breiðan hóp,“ segir Sigþór. Hann segir jafningjastuðning vera einn mikilvægasta þáttinn í starfinu. „Fólk styður hvert annað og lærir hvert af öðru. Um leið erum við að gefa fólki tækifæri til að feta brautir sem það hélt kannski að stæðu því ekki til boða. Jafningjastuðningurinn getur skipt gríðarlega miklu máli, hvort sem sjónskerðingin er meðfædd eða fólk missir sjón síðar á ævinni.“ Frá Dreka og dýflissum yfir í jóga og prjón Dagskrá félagsins endurspeglar þennan breiða aldurshóp. Þar er meðal annars boðið upp á spilakvöld, hlutverkaspilið Dreka og dýflissur, bókmenntaklúbb, prjónaklúbb, opið hús og fjölbreytta hreyfingu. Íþróttaklúbbur hittist tvisvar í viku þar sem meðal annars er boðið upp á líkamsþjálfun og jóga. Kór er starfandi hjá félaginu og yfir árið eru haldnir fjölmargir viðburðir, meðal annars haustgleði, jólahlaðborð, þorrablót og vorfagnaður. Þá eru skipulagðar dagsferðir og undanfarin ár hefur hópur farið á gönguskíðanámskeið á Ströndum. „Það er svo margt í gangi að maður gleymir alltaf einhverju þegar maður reynir að telja þetta allt upp,“ segir Sigþór og hlær. Markmiðið er þó það sama þvert á starfið: að efla þátttöku, sjálfstæði og félagsleg tengsl. Gott dæmi eru spilakvöldin. Blindrafélagið studdi fyrir nokkrum árum við gerð smáforrits sem gerir blindu og sjónskertu fólki kleift að nálgast upplýsingar úr borðspilum í símanum sínum. Þannig þarf viðkomandi ekki að treysta á að aðrir lesi spilin fyrir sig heldur getur hann tekið fullan þátt á eigin forsendum. Tennis er nýjasta viðbótin í félagslífi Blindrafélagsins. Tennis nýjasta viðbótin Eitt af því sem Blindrafélagið hefur lagt áherslu á er að kynna börnum og ungmennum fjölbreytta möguleika til hreyfingar. Þar koma svokallaðar færnibúðir sterkar inn, en þær verða haldnar í þriðja sinn í október. Búðirnar eru ætlaðar börnum og ungmennum frá tíu ára aldri og upp í tvítugt. Þar hafa þátttakendur meðal annars fengið að prófa hestamennsku, kajaksiglingar, júdó, frjálsíþróttir og bogfimi. Í ár bætist tennis í hópinn. „Við erum í raun að reyna að brjóta þetta glerþak og sýna fram á að hægt er að spila tennis með tiltölulega lítilli aðlögun,“ segir Sigþór. Í tennis fyrir blinda og sjónskerta er meðal annars notaður stærri bolti með bjöllu og reglurnar lagaðar að sjóngetu þátttakenda. Sigþór segir markmiðið ekki endilega að finna næstu stórstjörnu tennissins heldur fyrst og fremst að leyfa ungmennunum að prófa eitthvað nýtt. „Vonin er alltaf sú að einhver finni eitthvað sem honum finnst skemmtilegt og haldi áfram. Þetta snýst líka um að opna augu fólks fyrir því að blind og sjónskert börn, ungmenni og fullorðnir geta gert miklu meira en margir halda.“ Færnibúðirnar eru unnar í samstarfi við Háskólann í Reykjavík og háskóla í Bandaríkjunum. Nemendur í íþróttafræði taka þátt og fá þannig sjálfir reynslu af því hvernig hægt er að aðlaga íþróttir og tómstundastarf að ólíkum þörfum. „Það er komin vetrartíð“ Happdrættismiðinn í ár vekur jafnframt athygli fyrir útlitið. Hann er skreyttur bláum lit Blindrafélagsins og á honum standa kunnugleg orð: „Það er komin vetrartíð“. Orðin vísa til lagsins Vetrarsól eftir Gunnar Þórðarson við texta Ólafs Hauks Símonarsonar, sem Björgvin Halldórsson söng svo eftirminnilega. Sigþór segir orðin um leið vera kveðju og þakklætisvott til þeirra og annarra sem hafa kvatt á árinu og markað spor í líf fólks.“ „Tónlist er bæði gleðigjafi og huggari í sorg og okkur þótti þetta vel við hæfi,“ segir hann. Tónlist skipar raunar stóran sess innan Blindrafélagsins og þar er að finna tónlistarfólk á öllum skalanum, eins og Sigþór orðar það, frá „gítargutlurum heima í stofu“ til atvinnufólks. Velvilji almennings ómetanlegur Sigþór segir happdrætti Blindrafélagsins hafa fengið góðar viðtökur í gegnum tíðina, bæði hjá almenningi og fyrirtækjum. Sá stuðningur skiptir sköpum þegar kemur að því að halda úti fjölbreyttu starfi félagsins. „Flestir þekkja einhvern sem nýtur góðs af starfi Blindrafélagsins eða annarra félaga. Svona starf verður ekki til af engu. Við finnum almennt fyrir miklum velvilja og hann er algjörlega ómetanlegur. Við erum mjög þakklát fyrir það.“ Með kaupum á happdrættismiða fær fólk því ekki aðeins möguleika á að vinna bíl, ferð, síma eða aðra veglega vinninga. Kaupin hjálpa Blindrafélaginu að halda áfram að skapa vettvang þar sem blindir og sjónskertir geta hist, stutt hvert annað, prófað nýja hluti og tekið virkan þátt í samfélaginu. Og hver veit nema happdrættismiði sem styrkir gott málefni breytist í rafmagnsbíl eða utanlandsferð þegar dregið verður 15. desember. Þú getur nælt þér í miða í vetrarhappdrætti Blindrafélagsins með því að smella hér!
Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Fleiri fréttir Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Smellir George Michael lifna við á tónleikum í Hörpu og Hofi Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Sjá meira