Formúla 1

Kunnug­leg framlína í Malasíu

Valur Páll Eiríksson skrifar
Verstappen (t.h.) ræsir fremstur og Lewis Hamilton annar.
Verstappen (t.h.) ræsir fremstur og Lewis Hamilton annar. Joe Portlock/Getty Images

Max Verstappen verður á ráspól í Barein-kappakstri Formúlu 1 á morgun, en kappaksturinn fer fram í Malasíu sökum stríðsástands í Íran. Lewis Hamilton ræsir honum við hlið í fremstu röð.

Verstappen og Red Bull-liðið voru með algjöra yfirburði á brautinni í Malasíu í morgun. Hann var sneggstur ítrekað og hans besti tími kom á síðasta hring er hann kom í mark á 1:35,130.

Um er að ræða fyrsta ráspól Red Bull á tímabilinu og í fyrsta sinn í 27 ár sem bíll með vél frá Ford er á pól.

Lewis Hamilton á Ferrari, sem barðist við Verstappen um titilinn fyrir nokkrum árum, mun ræsa honum við hlið en hann var tæplega 0,3 sekúndum á eftir Hollendingum.

Isack Hadjar, félagi Verstappen á Red Bull, er kominn aftur á fullt eftir meiðsli og er þriðji og Kimi Antonelli á Mercedes, sem leiðir keppni ökuþóra með þónokkrum mun, er fjórði á ráslínu.

Charles Leclerc á Ferrari er fimmti, liðsfélagarnir Lando Norris og Oscar Piastri á McLaren þar á eftir og George Russell á Mercedes, sem náði sér engan veginn á strik í dag, er áttundi.

Pierre Gasly á Alpine ræsir níundi og Gabriel Bortoletto á Audi er tíundi.

Barein-kappaksturinn í Malasíu fer fram í fyrramálið og hefst klukkan 7:00. Bein útsending hefst klukkan 6:30 á Sýn Sport Viaplay.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×