Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar 1. október 2026 17:01 Rússland vinnur kerfisbundið að því að grafa undan getu Úkraínu til að fæða heiminn. Með því að ráðast á hafnir, siglingaleiðir og landbúnaðarinnviði er ekki aðeins verið að herja á Úkraínu. Þetta skapar líka aukið álag á hnattrænt fæðuöryggi, með alvarlegum afleiðingum fyrir milljónir manna langt fyrir utan Evrópu. Þetta eru ekki bara innantóm orð heldur bláköld staðreynd. Nú þegar hungur steðjar að 7,8% jarðarbúa, eða 645 milljónum manna, geta hömlur á kornútflutningi Úkraínu leitt til hækkunar á matvælaverði og aukinna erfiðleika í viðkvæmum löndum í Afríku, Asíu, Miðausturlöndum og Suður-Ameríku. Úkraína er gríðarlega mikilvæg fyrir alþjóðlega matvælamarkaði. Fyrir innrás Rússa var 15% af maísútflutningi heimsins, 10% af hveiti, 15-20% af byggi og 50% af sólblómaolíu frá Úkraínu. Úkraína hefur auk þess löngum flutt mikið út til Norður-Afríku og Miðausturlanda. Búist er við góðri uppskeru í ár en góð uppskera styður ekki við hnattrænt fæðuöryggi nema hún nái inn á alþjóðlega markaði. Tímasetningin gæti varla verið verri. Þegar uppskerutíminn hófst í Úkraínu í ágúst voru gerðar árásir á hafnir og flutningsleiðir með þeim afleiðingum að korn, olíufræ og aðrar landbúnaðarafurðir komust ekki úr landi. Útflutningur á korni dróst saman um helming miðað við árið áður og heimsmarkaðsverð hefur þegar hækkað. Ástandið gæti orðið enn alvarlegra á næstu mánuðum. Í október er hætta á að geymslurými verði á þrotum í Úkraínu og í nóvember gæti geymslur vantað fyrir meira en níu milljónir tonna af korni, olíufræjum og mjöli. Ef ekki tekst að selja kornið nú í haust gæti bændur skort fjármagn fyrir næstu sáningu, sem myndi draga úr framboði á næsta ári og framlengja neyðarástandið langt fram á árið 2027. Afleiðingarnar ná langt út fyrir Úkraínu. Raskanir á siglingaleiðum, orkumörkuðum, viðskiptaflæði og mannúðaraðstoð geta haft áhrif um allan heim, eins og yfirstandandi átök í Miðausturlöndum eru annað dæmi um. Samfélögin sem síst geta þolað matvælaskort og aðra hrinu verðhækkana eru þau sem eru líklegust til að finna fyrir þessu. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Rússar reyna að nota fæðuöryggi sem vopn. Allt frá því að þeir hófu árásarstríð sitt hafa þeir ítrekað ráðist að útflutningsleiðum Úkraínu og reynt að spilla aðgangi landsins að heimsmörkuðum. Svartahafið, sem er yfirleitt flutningsleið 90% af landbúnaðarútflutningi Úkraínu, er sem fyrr ómissandi. Alþjóðlegar afleiðingar ólöglegs árásarstríðs Rússlands eru enn einu sinni öllum augljósar. Alþjóðasamfélagið getur ekki sætt sig við stöðu mála þar sem Úkraínumenn halda áfram að þjást og þar sem milljónir manna víðsfjarri vígvellinum líða einnig fyrir ástandið. Þess vegna ætlar Evrópusambandið að auka stuðning sinn í verki. Í maí 2022 setti ESB á laggirnar nýjar flutningsleiðir fyrir úkraínskar útflutningsvörur, auk þess sem sambandið leggur sitt af mörkum til að auka geymslurými fyrir korn, styðja við bændur og bæta flutninga yfir landamæri. Staðreyndin er samt sú að þessar ráðstafanir geta aðeins mildað afleiðingarnar. Þær koma ekki í staðinn fyrir öruggar siglingar um Svartahaf. Það er deginum ljósara hvað þarf að gerast: árásum á aðstöðu, innviði og skipaflutninga fyrir kornútflutning verður að linna, tryggja verður öryggi kaupskipa og gera þarf skilyrðislaust vopnahlé sem leiðir til réttláts og varanlegs friðar. Vopnahlé sem leiðir til friðar er nauðsynlegt til að binda enda á daglegar þjáningar úkraínsku þjóðarinnar og efla hag allra sem treysta á stöðugt, opið og fyrirsjáanlegt alþjóðlegt matvælakerfi. Þetta er ekki fjarlægt mál fyrir Íslendinga. Ísland hefur staðið þétt við bakið á Úkraínu og vakti nýlega athygli á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, ásamt norrænum samstarfsþjóðum sínum, á afleiðingum innrásar Rússlands fyrir fæðuöryggi í heiminum. Þetta endurspeglar sameiginleg gildi Íslands og Evrópusambandsins: samstöðu, virðingu fyrir alþjóðalögum og stuðning við þau sem höllustum fæti standa. Matvæli mega aldrei verða að vopni í stríðsrekstri. Höfundur er sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Evrópusambandið Mest lesið Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar