„Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ Sindri Sverrisson skrifar 30. september 2026 12:46 Þóranna Kika Hodge-Carr verður áfram í stóru hlutverki hjá Val. vísir/Anton „Þær eru búnar að missa rosalega mikið,“ segir Helena Sverrisdóttir um lið Vals sem í kvöld byrjar nýja leiktíð í Bónus-deild kvenna í körfubolta. Sérfræðingar Körfuboltakvölds óttast dimman vetur á Hlíðarenda.
Valur hefur misst Ástu Júlíu Grímsdóttur til Njarðvíkur og þá er Guðbjörg Sverrisdóttir hætt. Nokkur ár eru síðan Hallveig Jónsdóttir hætti og þá er Dagbjört Dögg Karlsdóttir komin í barneignaleyfi. „Þetta gamla Valslið sem við þekktum, það er búið að skipta því út fyrir yngri stelpur,“ sagði Helena í upphitunarþætti Körfuboltakvölds á Sýn Sport Íslandi á mánudagskvöld. Brot úr þættinum má sjá hér að neðan en leikur Vals við meistarakandídata Njarðvíkur er svo sýndur klukkan 19:15 í kvöld. Klippa: Valsliðið misst rosalega mikið „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum. Auðvitað er alltaf gott að fá til sín útlendinga sem þú þekkir en Alyssa [Cerino] sem einhver leikmaður inní teig… við sáum það öll að henni finnst það ekki gaman. Henni finnst ekki gaman að láta ýta í sig eða vera að ýta öðrum og maður hugsar með sér; Hver ætlar að vera þessi týpa? Þóranna getur það auðvitað en hún er ekki há í loftinu. Það vantar alls konar í liðið og manni líður eins og þær séu frekar þunnar,“ sagði Helena. Rúnar Ingi Erlingsson tók í sama streng: „Stöðugleiki er það sem ég spyr mig um. Mér fannst þær vera alls konar í fyrra. Þær áttu virkilega flottar frammistöður en svo var algjört þrot inn á milli. Jafnvel var fyrri hálfleikur góður en seinni hálfleikur út og suður. Mér fannst við sjá þetta í úrslitakeppninni líka, í einvíginu á móti Grindavík. En það eru gæði þarna og spennandi leikmenn,“ sagði Rúnar og nefndi sérstaklega Dzönu Crnac sem kominn er til Vals frá Ármanni.
Bónus-deild kvenna Valur Körfuboltakvöld Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Fleiri fréttir Valur - Haukar | Hörkuslagur á Hlíðarenda Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Sjá meira