Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar 30. september 2026 11:33 Kjarasamningar voru gerðir á sínum tíma með ákveðnum forsendum. Launafólk tók þá meðvitaða áhættu að ganga til hóflegra launahækkana á sama tíma og verðbólga var mikil og óvissa mikil um þróun vaxta og verðlags. Í staðinn átti að skapa sameiginlegan ramma þar sem launafólk, atvinnurekendur og opinberir aðilar legðu sitt af mörkum til að ná niður verðbólgu og vöxtum. Sú vegferð hefur ekki gengið eftir sem skyldi. Verðbólga hefur reynst þrálátari en vonir stóðu til og væntingar um lækkun vaxta hafa ekki gengið eftir með þeim hætti sem lagt var upp með. Á sama tíma hefur launafólk þurft að takast á við áframhaldandi hækkun kostnaðar við heimili, þjónustu og nauðsynjar. Það er enn hægt að finna leið sem tryggir að kjarasamningar haldi og skapað verði svigrúm fyrir áframhaldandi vinnufrið. Það þarf þó nýjar og skýrari leikreglur. Ekki nóg að segja að allir séu sammála Gildandi kjarasamningar byggja meðal annars á því að samningsaðilar fylgist með þróun efnahagsmála og bregðist við ef forsendur bresta. Markmiðið er ekki eingöngu að ákveða hvað gerist þegar eitthvað fer úrskeiðis heldur að grípa tímanlega til aðgerða sem gera samningnum kleift að halda gildi sínu. Reynslan síðustu missera sýnir að almennar yfirlýsingar um hóflegar verðhækkanir duga ekki einar og sér. Ef launafólk á að treysta því að áfram verði friður á vinnumarkaði þarf að vera hægt að sjá með skýrum hætti hvað hver aðili ætlar að gera. Samningsaðilar þurfa að taka höndum saman um nýtt stöðugleikaskilyrði fyrir gildandi kjarasamninga. Í þessari umræðu þarf líka að hafa í huga að verkalýðsforystan samanstendur af fjölmörgum forystumönnum stéttarfélaga sem hafa mismikið vægi í opinberri umræðu. Sjónarmið fleiri þurfa að komast að og fá raunverulegt vægi þegar rætt er um framtíð kjarasamninga og hagsmuni launafólks. Skýr verðbólgumarkmið Verðbólga verði mæld á fyrir fram ákveðnum tímapunktum og niðurstaðan hafi skýr áhrif á gildistíma samninganna. Tillaga félaganna um að miða við 4,5% verðbólgu í mars 2027 og 3,0% í september 2027 er eðlilegur upphafspunktur fyrir slíka umræðu, enda byggir hún á spá Seðlabanka Íslands sem vísað er til í tillögunni. Mikilvægt er þó að ákvæðið sé einfalt, gagnsætt og fyrirsjáanlegt. Allir þurfa að vita fyrir fram hvaða mælikvarði gildir og hvaða afleiðingar það hefur ef markmiðin nást ekki. Stjórnvöld þurfa að standa við sinn hluta Það þarf að setja skýr mörk um hækkun gjaldskráa ríkis og sveitarfélaga. Tillagan um að þær hækki ekki um meira en 2,5% frá október 2026 og út árið 2027 er skýr og mælanleg. En hér þarf að ganga lengra. Það þarf að birta sameiginlegt yfirlit yfir þær gjaldskrár og aðgerðir sem stjórnvöld skuldbinda sig til að halda aftur af, svo hægt sé að fylgjast með því hvort staðið sé við loforðin. Fyrirtækin þurfa líka að leggja sitt af mörkum Markmið um verðstöðugleika næst ekki ef eingöngu er horft til launa og opinberra gjaldskráa. Fyrirtæki sem starfa á íslenskum markaði þurfa einnig að sýna ábyrgð. Það er mikilvægt að stór verðmótandi fyrirtæki geri skýrari grein fyrir verðlagsáformum sínum út gildistíma samninganna. Það er ekki ásættanlegt að launafólk taki á sig hóflegar launahækkanir í því skyni að ná niður verðbólgu á meðan aðrir aðilar í hagkerfinu líta á það svigrúm sem tækifæri til verðhækkana. Mikilvægara er að skapa gagnsæi, ábyrgð og sameiginleg markmið. Sameiginlegg aðgerðaáætlun stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins Ríkisstjórnin, atvinnurekendur, sveitarfélög og stéttarfélög geri með sér tímabundið stöðugleikasamkomulag til loka árs 2027. Í því samkomulagi verði: skýr verðbólgumarkmið, skýr mörk um hækkun opinberra gjaldskráa, yfirlit yfir þær lagabreytingar sem stjórnvöld skuldbinda sig til að framkvæma, reglulegt eftirlit með þróun verðlags, reglulegir fundir samningsaðila, skýr viðbrögð ef forsendur bresta, og sameiginleg áhersla á að lækka verðbólgu og vexti. Þetta væri í raun framlenging á þeirri hugsun sem lá að baki kjarasamningunum frá 2024: að ábyrgð á efnahagslegum stöðugleika sé sameiginleg. Hvað fær launafólk fyrir að halda áfram? Það þarf einnig að vera alveg skýrt hvað launafólk fær í staðinn fyrir að samþykkja áframhaldandi frið á vinnumarkaði. Samkomulag um nýjar forsendur þarf að byggjast á gagnkvæmu trausti. Ef stéttarfélög fallast á að leggja til hliðar kröfur um tafarlausar leiðréttingar vegna forsendubrests þarf það að koma fram í raunverulegum og mælanlegum skuldbindingum annarra samningsaðila. Launafólk á ekki að þurfa að taka áhættuna í annað sinn án þess að tryggt sé að hinir aðilar kerfisins taki sína ábyrgð. Samningsaðilar samþykki nýtt stöðugleikaákvæði þar sem samningnum er haldið gangandi svo lengi sem allir aðilar standa við sínar skuldbindingar. Verðbólga verði mæld á fyrir fram ákveðnum tímapunktum. Gjaldskrár verði bundnar skýrum mörkum. Stjórnvöld setji fram tímasetta áætlun um þær lagabreytingar sem þau hafa heitið. Atvinnurekendur taki þátt í sameiginlegu átaki gegn verðhækkunum. Launa- og forsendunefnd fylgist með framvindunni og grípi inn í áður en staðan verður óviðráðanleg. Ef forsendur bresta þarf að vera fyrir fram ákveðið hvaða viðbrögð taka gildi. Leiðin til að skapa raunverulegan vinnufrið. Markmiðið á ekki að vera að vinna sigur á einum aðila, eða vera með gaslýsingar í fjölmiðlum án ábyrgðar. Markmiðið á að vera að vinna saman gegn verðbólgunni. Launafólk hefur þegar tekið sinn hluta af áhættunni. Nú þurfa stjórnvöld, sveitarfélög og atvinnurekendur að sýna með skýrum og mælanlegum hætti að þau séu tilbúin að taka sinn hluta. En til að kjarasamningar haldi þarf traustið að byggjast á meira en orðum. Það þarf að byggjast á skýrum markmiðum, mælanlegum skuldbindingum og raunverulegum viðbrögðum þegar forsendur bresta. Þeir aðilar sem málið varðar þurfa að koma samstilltir að borðinu með skýrt umboð frá sínu baklandi þar sem allir koma að borðinu. Höfundur er formaður Bárunnar, stéttarfélags. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vinnumarkaður Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun