Karl Th. Birgisson er látinn Jakob Bjarnar skrifar 16. september 2026 17:03 Karl Th. Birgisson andaðist í nótt. Karl Th. Birgisson, stjórnmálafræðingur, ritstjóri, útvarpsmaður og rithöfundur, er látinn 62 ára að aldri. Hann andaðist í nótt 16. september en Karl hafði átt við veikindi að stríða undanfarin ár.
Karl fæddist 8. október 1963, sonur hjónanna Stefaníu Magnúsdóttur húsmóður og Birgis Thorberg Björnssonar málarameistara. Hann gekk í Austurbæjarskóla og var stúdent frá Menntaskólann í Reykjavík. Karl var einkum þekktur fyrir störf sín á fjölmiðlum, fyrst sem blaðamaður og þá ritstjóri Pressunnar. Þá var hann ritstjóri tímaritsins Mannlífs og vefritanna Eyjunnar og Herðubreiðar. Karl ritaði einnig pistla fyrir ýmsa fjölmiðla svo sem í Fréttablaðið og á Heimildina. Þá stýrði hann um árabil hinum gríðarvinsælu útvarpsþáttum Orð skulu standa sem voru á dagskrá Rásar 1 en þar voru með honum liðstjórarnir Hlín Agnarsdóttir leikstjóri og séra Davíð Þór Jónsson. Karl útfærði þá þættina þannig að þeir voru tækir á svið með fulltingi Hilmis Snæs Guðnasonar og voru þeir meðal annars sýndir á litla sviði Borgarleikhússins. Karl var áhugamaður um stjórnmál en hann heillaðist mjög af stjórnmálaleiðtoganum Vilmundi Gylfasyni sem ungur maður og starfaði þá fyrir Bandalag jafnaðarmanna. Hann var aðstoðarmaður Jóns Baldvins Hannibalssonar þá er hann gegndi stöðu fjármálaráðherra. Karl átti seinna eftir að starfa sem framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, stöðu sem hann tók við sumarið 2002 og gegndi vel á þriðja ár. Karl tók á seinni árum til við að rita bækur um þjóðfélagsmál, hann sendi frá sér ljóðabókina Blóðsól auk bókarinnar um ofurhvolpinn Kát í félagi við dóttur sína, svo fátt eitt sé nefnt. Karl stundaði nám í stjórnmálafræði og heimspeki við DePauw-háskólann í Indíana í Bandaríkjunum og framhaldsnám við John Hopkins University í Washingon DC. Karl var lengi vel einn helsti sérfræðingur Íslands um bandaríska sögu og stjórnmál. Hann lætur eftir sig þrjú börn: Stefán Thorberg, Magneu Maríu og Steinunni Jenný og tvö barnabörn.
Andlát Fjölmiðlar Bókaútgáfa Samfylkingin Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Costanza á klakanum Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Fleiri fréttir Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Sjá meira