„Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 10. september 2026 12:03 María Heimisdóttir landlæknir. Vísir/Anton Brink Landlæknir lítur átök innan SÁÁ mjög alvarlegum augum en starfsemi samtakanna er nú til skoðunar hjá embættinu. Mikilvægast sé að tryggja öryggi og gæði þjónustu að mati landlæknis sem telur uppsagnir áhyggjuefni. „
Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega. Við erum í samskiptum við stjórnendur þarna daglega og fylgjumst grannt með og bendum á hvað betur megi fara. Það er okkur, eins og mjög mörgum öðrum, kappsmál að þessi þjónusta sé í sem öruggustum farvegi.“ Þetta segir María Heimisdóttir landlæknir í samtali við fréttastofu. Greint hefur verið frá átökum innan SÁÁ síðustu vikur og hafa ýmsir lýst áhyggjum af faglegu starfi samtakanna. Félagið Rótin skoraði til að mynda á heilbrigðisyfirvöld að taka stjórnskipun SÁÁ til sérstakrar skoðunar. Ýmsir stjórnendur SÁÁ hafa sagt starfi sínu lausu. Forstjóri samtakanna og fagstjóri Víkur sögðu upp í störfum í ágúst. Í kjölfarið fylgdi Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga, sem sakaði stjórn SÁÁ um afskipti af faglegu starfi. Sjúkratryggingar og SÁÁ undirrituðu nýjan heildarsamning í desember sem tryggir félaginu tvo milljarða frá ríkinu til næstu fjögurra ára. María Heimisdóttir landlæknir segir embættið vera með starfsemi SÁÁ til skoðunar. „Við höfum verið að kanna fyrst og fremst öryggi sjúklinga og gæði þjónustu frá því að við fréttum fyrst af þessum atburði eða þessum breytingum þarna innan frá. Við fórum strax daginn eftir og byrjuðum að skoða þetta og erum enn þá að því og erum í daglegum samskiptum við stjórnendur þarna.“ Þóra Björk Ingólfsdóttir, fráfarandi fagstjóri á Vík, steig fram í viðtali á Vísi og sagði það fullreynt að heilbrigðisþjónusta sem þessi sé á forræði félagasamtaka. „Við kannski horfum nú ekki á þetta stjórnskipulega en kannski fyrst og fremst á gæði og öryggi. Ef það er til staðar eitthvert það fyrirkomulag sem að tryggir ekki gæði og öryggi þá hlýtur að þurfa að endurskoða það,“ segir María innt eftir viðbrögðum við þessu. Uppsagnir stjórnenda séu áhyggjuefni og lítur landlæknir málið alvarlegum augum. „Þessi skoðun er komin til vegna þessara uppsagna. Það verður niðurstaða úr þessu en ég get ekki á þessum tíma sagt til um nákvæmlega hvenær við lokum þessu máli.“
SÁÁ Embætti landlæknis Fíkn Mest lesið Systir Haraldar er látin Erlent Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Innlent Fleiri fréttir Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Sjá meira