Miley losar sig við eftirnafnið Magnús Jochum Pálsson skrifar 1. september 2026 11:52 Miley Cyrus virðist búin að losa sig við eftirnafnið og gengur undir listamannsnafninu Miley. Poppstjarnan Miley Cyrus stendur á tímamótum fyrir útgáfu tíundu plötu sinnar. Hún virðist hafa ákveðið að losa sig við eftirnafn sitt og ætlar greinilega einungis að nota listamannsnafnið Miley héðan af.
Nafnabreytinguna má sjá á bæði Instagram-síðu tónlistarkonunnar og á vefsíðu hennar. Notendanafn hennar á Instagram er núna einfaldlega @miley í stað @mileycyrus meðan vefsíðan hennar er komin með slóðina mileyofficial.com þegar hún var áður mileycyrus.com. Söngkonan birti einnig tvær nýjar myndir af sér með rauðum bakgrunni á Instagram og við aðra þeirra skrifaði hún einfaldlega „MILEY.“. Miðað við útfærsluna og umstangið virðist hún vera að gefa nýrri útgáfu undir fótinn. Hún hefur áður sagt að hún sé að vinna að sinni tíundu plötu sem verði tileinkuð ástarlögum. Destiny Hope í Miley Ray Cyrus í Miley Nafnabreytingin er forvitnileg fyrir þær sakir að hún er þar markvisst að fjarlægjast eftirnafnið Cyrus sem hún fær auðvitað frá föður sínum, kántrístjörnunni Billy Ray Cyrus, en þau hafa átt stormasamt samband í gegnum tíðina. Þetta er þó ekki fyrsta nafnabreyting söngkonunnar, hún var skírð Destiny Hope Cyrus en breytti nafni sínu formlega í Miley Ray Cyrus árið 2008. Nafnið Miley er dregið af viðurnefninu Smiley sem foreldrar hennar gáfu henni í æsku og styttu síðar í Miley. Níunda plata Mileyar, Something Beautiful, kom út í maí á síðasta ári auk smáskífanna „End of the World“, „Easy Lover“ og „Secrets“ sem voru á henni. Fyrr á þessu ári gaf hún svo út lagið „Younger You“ sem hluta af tuttugu ára afmælisþætti Hönnuh Montana. Nafnabreytingin kemur jafnframt á erfiðum tíma í lífi söngkonunnar því guðmóðir hennar, Dolly Parton, lést 25. ágúst síðastliðinn, 80 ára að aldri, og var borin til grafar þremur dögum síðar í lítilli athöfn. Parton var náin vinkona föður Mileyar og var þess vegna valin sem guðmóðir hennar og áttu þær gott samband gegnum árin. View this post on Instagram A post shared by MILEY (@miley) Miley heiðraði Parton á samfélagsmiðlum sínum, sagði ólýsanlegt að missa „Dolly frænku“ og bætti við að þeirra helgustu augnablik yrðu áfram prívat. „Það sem ég veit er að Dolly myndi vilja að ég myndi finna fyrir því, skrifa lag um það, og halda síðan áfram með lífið og vera sterk. Ég er með engil mér við hlið og hef alltaf gert. Eitt af okkar síðustu samtölum var um tónlist og umbreytingar,“ sagði Miley í Instagram-færslu.
Tónlist Bandaríkin Mannanöfn Mest lesið Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Lífið Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Lífið Sendum Möggu Stínu í Eurovision Lífið Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Lífið Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum Áskorun Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Fleiri fréttir Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Sheeran bað aðdáendur afsökunar „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð „Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Lifa í draumi og heiðra Eyfa Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Sjá meira