Handbolti

Eyjakonur og Haukar meistarar sam­kvæmt spánni

Sindri Sverrisson skrifar
Valsarar sköruðu fram úr á síðustu leiktíð en að vanda hafa orðið talsverðar breytingar á liðunum í sumar.
Valsarar sköruðu fram úr á síðustu leiktíð en að vanda hafa orðið talsverðar breytingar á liðunum í sumar. Samsett/Anton/Diego

Handboltavertíðin á Íslandi hefst í kvöld og af því tilefni hélt HSÍ kynningarfund í dag, fyrir Olís- og Grill 66-deildir karla og kvenna. Þar var Eyjakonum spáð sigri í Olís-deild kvenna og Haukum sigri í Olís-deild karla.

Á fundinum skrifaði Jón Halldórsson, formaður HSÍ, undir samninga við helstu bakhjarla sambandsins í keppnum á vegum sambandsins. Nýr samningur við Olís er til þriggja ára og samningurinn við CCEP, vegna Powerade-bikarsins, er til næstu fimm ára.

ÍBV, sem til að mynda hefur fengið landsliðskonuna og Þýskalandsmeistarann Andreu Jacobsen í sínar raðir í sumar, er spáð sigri í Olís-deild kvenna. Haukar komu þar næst á eftir en ríkjandi Íslands- og bikarmeisturum Vals er spáð 3. sæti.

Breyting varð á deildinni skömmu fyrir mót þegar Selfoss tók sæti Víkings eftir að Víkingar ákváðu að draga lið sitt úr keppni.

Spáin fyrir Olís-deild kvenna tímabilið 2026-27. Selfoss bættist í deildina á síðustu stundu, í stað Víkings sem dró lið sitt úr keppni, og er ekki með í spánni.Olís-deildin

Haukum er spáð sigri í Olís-deild karla en þar á eftir koma liðin tvö sem mættust í æsispennandi úrslitaeinvígi í vor; Íslandsmeistarar Vals og FH sem nú leikur undir stjórn Arons Pálmarssonar. Selfossi er spáð botnsætinu og Stjörnunni næstneðsta sæti.

Spá fyrir Olís-deild karla tímabilið 2026-27. Haukum er spáð deildarmeistaratitlinum.Olís-deildin

Leiktíðin hefst í kvöld með Meistarakeppni HSÍ þar sem kvennalið Vals og Hauka mætast í N1-höllinni á Hlíðarenda klukkan 18, og svo karlalið félaganna á sama stað klukkan 20:15.

Valskonur eru ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar og Valsmenn ríkjandi Íslandsmeistarar en karlalið Hauka ríkjandi bikarmeistari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×