Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Smári Jökull Jónsson skrifar 30. ágúst 2026 14:18 Ný endurvinnslustöð Sorpu við Lambhagaveg. Vísir/Ívar Fannar Endurvinnslustöð Sorpu við Sævarhöfða lokar í dag í síðasta sinn. Í stað stöðvarinnar verður opnuð ný stöð við Lambhagaveg og segir samskiptastjóri Sorpu að þrátt fyrir að þjónustan færist fjær ákveðnum hverfum í Reykjavík eigi ferðalagið með ruslið ekki að taka lengri tíma í heild.
Endurvinnslustöðin við Lambhagaveg við Korputorg opnar á þriðjudag og er fyrsta stöðin sem Sorpa byggir síðan 2006. Á bakvið bygginguna er önnur hugmyndafræði en á öðrum stöðvum, hún er byggð á hæðum og í hring sem þýðir að umferð einstaklinga og fyrirtækja annars vegar og þeirra sem skipta út gámum hins vegar skarast ekki. „Það sem þetta gerir er að það er hægt að taka á móti miklu meira magni á hverjum degi en verið hefur til dæmis á Sævarhöfða, sem fólk hefur fundið fyrir núna í sumar að hefur verið undir miklu álagi.“ Gunnar Dofri Ólafsson er samskiptastjóri Sorpu.Vísir/Ívar Fannar „Þannig að við sjáum fram á að þarna geti fræðilega afköstin verið þrefalt meiri en á Sævarhöfða,“ segir Gunnar Dofri Ólafsson, samskiptastjóri Sorpu. „Hún er það mikið öflugri“ Stöðin við Lambhagaveg kemur í stað endurvinnslustöðvar við Sævarhöfða sem lokar í síðasta sinn um helgina. Endurvinnslustöðin við Lambhagaveg er sú fyrsta sem Sorpa byggir síðan 2006 og sú fyrsta sem fyrirtækið lætur hanna frá grunni.Vísir/Ívar Fannar „Þetta færir þjónustuna auðvitað aðeins fjær íbúum í Vogum Reykjavík og þar í kring. En aftur á móti þá er stöðin sem er við Lambhaga, hún á að vera það mikið öflugri og afkastameiri að ferðalagið að fara í Sorpu með biðtíma og með öllu saman, það ætti ekki að lengjast.“ Hús fyrir Góða hirðinn og flöskumóttöku Nú sé tekið upp fyrirkomulag með mörgum akreinum sem þekkist vel frá öðrum Norðurlöndum, aðgengi gott en Gunnar segir að fyrirkomulag með römpum líkt og er á flestum stöðvum skapi keðjuverkandi tafir á álagstímum. Nýja stöðin opnar þriðjudaginn 1. september.Vísir/Ívar Fannar Þá verði aðstaða fyrir starfsmenn betri enda unnið í gámahúsum á flestum endurvinnslustöðvum. „Þetta eru bara fullbúin hús sem eru byggð þarna fyrir starfsemina. Við erum með hús utan um bæði starfsmannaaðstöðuna, við erum með hús fyrir Góða hirðinn sem verður með útibú þarna og þarna verður líka inni í húsi hjá okkur móttaka fyrir flöskur og dósir,“ segir Gunnar Dofri að lokum.
Sorpa Umhverfismál Reykjavík Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Fleiri fréttir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Sjá meira