„Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Andri Broddason skrifar 21. ágúst 2026 12:00 Kristinn Pálsson verður lykilmaður hjá Íslandi í komandi leikjum í undankeppni heimsmeistaramótsins. Vísir / Anton Brink Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mætir Finnlandi í æfingaleik í kvöld. Leikurinn er hluti af undirbúning fyrir undankeppni heimsmeistaramótsins í körfubolta 2027.
Kristinn Pálsson, leikmaður íslenska landsliðsins í körfubolta er bjartsýnn fyrir komandi leiki og alltaf gama að koma saman með landsliðinu. „Það er alltaf jafn gaman að æfa með þessum gaurum. Þetta er nánast eins og félagslið, við erum búnir að vera saman lengi og þekkjum hvorn annann upp á tíu.“ Eiga góðan möguleika á að komast á HM Auk leiksins í kvöld mætir Ísland Serbíu ytra og Tyrklandi á heimavelli í næstu viku. Þetta eru mikilvægir leikir í milliriðli undankeppni heimsmeistaramótsins í körfubolta. Þar sem Ísland á enn séns á að komast á heimsmeistaramótið sem verður haldið á næsta ári. „Það er alltaf sama tuggan í þessu, við þurfum að gera skítaverkin betur heldur en andstæðingurinn. Við erum að fara í þrjá erfiða leiki og spila gegn leikmönnum í hæsta gæðaflokki. Til að eiga séns þá þurfum við að stoppa þá og við förum með hausinn hátt í leikinn.“ Mæta stjörnuleikmönnum í NBA og taplausu liði Mánudaginn 31. ágúst kemur Tyrkland í heimsókn til Íslands en liðið er með fullt hús stiga í unankeppninni. „Við þurfum á öllum stuðningi að halda. Síðast þegar við mættum þeim í höllinni þá unnum við þá en þeir eru með aðeins öðruvísi lið núna. Við höfum sýnt það áður að við getum unnið þessar stóru þjóðir. Við eigum séns þangað til lokaflautið fer.“ Síðasti leikur gegn Tyrklandi í Laugardalshöllinni var í febrúar á síðasta ári þar sem Ísland vann 83-71. En áður en Ísland mætir Tyrklandi fer liðið til Belgrad og mætir Serbíu. Þar eru stjórstjörnur í NBA-deildinni og þar á meðal er Nikola Jokic sem er af mörgum talinn einn besti körfuboltamaður heims. „Það er mjög spennandi verkefni en við höfum ekki enn farið yfir leikplanið. Þetta verður skemmtileg áskorun og heiður að fá að vera með þeim á gólfinu.“ Fór frá Spáni til Ítalíu Á síðasta tímabili lék hann með Jesi í ítölsku B-deildinni og hefur spilað vel þar. Fyrr í sumar skrifaði hann undir samning við HLA Alicante sem hann segir vera stærra lið. „Ég spilaði ágætlega á Ítalíu í fyrra og er að taka skref upp á við. Maður er að reyna að elta einhvern feril í þessu og sjá hvað gerist. Ég er mjög spenntur fyrir komandi verkefni.“
Landslið karla í körfubolta HM 2027 í körfubolta Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Formúla 1 Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Fótbolti Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Handbolti Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Körfubolti Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Fótbolti Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Sjá meira