Sport

Í bann fyrir neyslu kókaíns: „Ekkert af þessu af­sakar það sem ég gerði“

Sindri Sverrisson skrifar
Nick Kyrgios hefur best náð 13. sæti á heimslistanum í tennis.
Nick Kyrgios hefur best náð 13. sæti á heimslistanum í tennis. Getty/Marijan Murat

Ástralski tennisspilarinn Nick Kyrgios varð uppvís að kókaínneyslu á tennismóti á Mallorca í júní og hefur verið úrskurðaður í bann. Hann kveðst hafa gert stór mistök og harmar að hafa brugðist ungum aðdáendum með þessum hætti.

Hinn 31 árs gamli Kyrgios, sem hæst hefur náð 13. sæti á heimslistanum, hefur rétt á að áfrýja banninu en hefur ekki gert það, samkvæmt tilkynningu alþjóðlegrar heilindastofnunar tennisíþróttarinnar, ITIA.

Bannið hefur gilt frá 4. ágúst eftir að kókaín fannst í prufu frá því á Mallorca Open þann 22. júní.

Kyrgios segist hafa gert mikil mistök og vilja axla fulla ábyrgð á þeim. Hann muni næstu fjórar vikur draga sig í hlé og slökkva á öllum samfélagsmiðlum, og einbeita sér að því að komast á beina braut.

„Ég ætla ekki að vera með afsakanir en ég vil samt setja í smá samhengi hvernig staðan hefur verið hjá mér. Glíman við meiðsli síðustu ár hefur tekið mikinn toll, bæði andlega og líkamlega. Líkaminn hefur ekki getað gert það sem hugurinn býst við, og það hefur verið erfiðara en ég gat ímyndað mér að sætta sig við að lok ferilsins nálgist,“ skrifaði Kyrgios á Instagram.

Kyrgios hefur aðeins spilað fjóra leiki í einliðaleik í ár, eftir glímu við hné- og úlnliðsmeiðsli síðustu ár. Síðast spilaði hann í tvíliðaleik á Wimbledon-mótinu þar sem þeir Alexander Bublik töpuðu í fyrstu umferð.

„Ég hef alltaf sagt að ég valdi ekki tennis heldur valdi tennis mig. En það að sleppa takinu af einhverju sem allt mitt líf hefur snúist um er það erfiðasta sem ég hef gert. Stundum hefur mér fundist ég hjálparlaus og aleinn.

Ekkert af þessu afsakar það sem ég gerði,“ skrifaði Kyrgios.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×