Loddaralist í aðdraganda 29. ágúst Daði Freyr Ólafsson skrifar 15. ágúst 2026 18:15 Þessa dagana berst dreifiefni inn um póstlúgur landsmanna frá báðum fylkingum í Evrópumálunum. Þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst snýst formlega um hvort hefja skuli aðildarviðræður, um að „kíkja í pakkann" eins og það er kallað. Ríkisstjórninni, oft kenndri við Valkyrjurnar, má telja tvennt til tekna: hert eftirlit á landamærunum og endurskipulagningu einkunnakerfis grunnskólanna. Kosningaloforðin voru hins vegar önnur og stærri. Vextir skyldu barðir niður með sleggju, verðbólgan hamin og hvorki aðildarviðræður né þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB settar á dagskrá. Nú, einu og hálfu ári síðar, mælist verðbólga meiri en fyrir kosningar, sleggjan hefur ekki fundist og þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram eftir hálfan mánuð. Bilið milli orða og efnda er orðið að vinnulagi – það er loddaralistin. Alvarlegasti þáttur hennar er framsetningin á því hvað sé í húfi. Landsmönnum er talin trú um að aðild hafi óveruleg áhrif á ríkissjóð. Í umfjöllun utanríkisráðuneytisins frá því í júní er nettóframlag Íslands til ESB metið á 10–15 milljarða króna á ári og „aðildargjaldið" sagt 2–7 milljarðar króna þegar EES-kostnaður er dreginn frá, fjögurra setninga mat án heimildar, án viðmiðunarárs og án þess að brúttógreiðslan sé nefnd. Óháð úttekt Samtaka skattgreiðenda, reiknuð eftir eigin fjármögnunarreglum ESB og sannreynd á raungreiðslum Finnlands og Króatíu, setur nettókostnaðinn á 23–44 milljarða króna á ári með miðgildi um 34 milljarða króna. Hagstæðasti endinn á því bili er helmingi hærri en efri mörk opinberu tölunnar. Samtökin töldu framsetninguna nógu alvarlega til að senda formlegt erindi til lýðræðis- og mannréttindaskrifstofu ÖSE. Trén í frumskógi ESB eru mörg og skógurinn er bæði stór og þéttur, eins og góður maður komst að orði. Sá sem einblínir á opinberu töluna sér hvorki skóginn né trén. Kjósendur eiga rétt á heildarmyndinni áður en gengið er að kjörborðinu 29. ágúst. Höfundur er ritstjóri evropumalin.is og stendur að baki jatiladfela.com Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Sjá meira
Þessa dagana berst dreifiefni inn um póstlúgur landsmanna frá báðum fylkingum í Evrópumálunum. Þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst snýst formlega um hvort hefja skuli aðildarviðræður, um að „kíkja í pakkann" eins og það er kallað. Ríkisstjórninni, oft kenndri við Valkyrjurnar, má telja tvennt til tekna: hert eftirlit á landamærunum og endurskipulagningu einkunnakerfis grunnskólanna. Kosningaloforðin voru hins vegar önnur og stærri. Vextir skyldu barðir niður með sleggju, verðbólgan hamin og hvorki aðildarviðræður né þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB settar á dagskrá. Nú, einu og hálfu ári síðar, mælist verðbólga meiri en fyrir kosningar, sleggjan hefur ekki fundist og þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram eftir hálfan mánuð. Bilið milli orða og efnda er orðið að vinnulagi – það er loddaralistin. Alvarlegasti þáttur hennar er framsetningin á því hvað sé í húfi. Landsmönnum er talin trú um að aðild hafi óveruleg áhrif á ríkissjóð. Í umfjöllun utanríkisráðuneytisins frá því í júní er nettóframlag Íslands til ESB metið á 10–15 milljarða króna á ári og „aðildargjaldið" sagt 2–7 milljarðar króna þegar EES-kostnaður er dreginn frá, fjögurra setninga mat án heimildar, án viðmiðunarárs og án þess að brúttógreiðslan sé nefnd. Óháð úttekt Samtaka skattgreiðenda, reiknuð eftir eigin fjármögnunarreglum ESB og sannreynd á raungreiðslum Finnlands og Króatíu, setur nettókostnaðinn á 23–44 milljarða króna á ári með miðgildi um 34 milljarða króna. Hagstæðasti endinn á því bili er helmingi hærri en efri mörk opinberu tölunnar. Samtökin töldu framsetninguna nógu alvarlega til að senda formlegt erindi til lýðræðis- og mannréttindaskrifstofu ÖSE. Trén í frumskógi ESB eru mörg og skógurinn er bæði stór og þéttur, eins og góður maður komst að orði. Sá sem einblínir á opinberu töluna sér hvorki skóginn né trén. Kjósendur eiga rétt á heildarmyndinni áður en gengið er að kjörborðinu 29. ágúst. Höfundur er ritstjóri evropumalin.is og stendur að baki jatiladfela.com
Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar
Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun