Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. ágúst 2026 12:32 Eftir 22 ára bið varð Arsenal Englandsmeistari á síðasta tímabili. Ofurtölva Sky Sports spáir því að Skytturnar endurtaki leikinn í vetur. epa/TOLGA AKMEN Ef spá ofurtölvu Sky Sports rætist verður Arsenal Englandsmeistari annað árið í röð. Þá spáir hún því að Liverpool endi ofar en Manchester United og Chelsea og Tottenham taki stór stökk frá síðasta tímabili. Í tilefni þess að rúm vika er þar til keppni í ensku úrvalsdeildinni hefst ræsti Sky Sports ofurtölvuna og fékk hana til að spá í spilin fyrir komandi tímabil. Samkvæmt spá ofurtölvunnar ver Arsenal meistaratitilinn sem liðið vann í fyrra. Ofurtölvan spáir því að Arsenal endi fjórum stigum ofar en Manchester City sem varð einnig í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili. Liverpool endaði í 5. sæti á síðasta tímabili en ofurtölvan spáir því að Rauði herinn fari upp um tvö sæti undir stjórn nýja stjórans, Andonis Iraola. United mun hins vegar fara úr 3. sætinu niður í það fjórða rætist spá ofurtölvunnar. Andoni Irola er tekinn við Liverpool eftir að hafa gert gott mót með Bournemouth.epa/ADAM VAUGHAN Chelsea, sem hefur farið mikinn á félagaskiptamarkaðnum í sumar, er spáð 5. sætinu en liðið endaði í því tíunda á síðasta tímabili. Þá er því spáð að Tottenham hoppi upp um ellefu sæti frá síðasta tímabili og endi í 6. sætinu. Á meðan Tottenham er mesti hástökkvarinn í spá ofurtölvunnar er því spáð að Sunderland taki mestu dýfuna milli tímabila. Sunderland kom öllum á óvart með því að enda í 7. sæti á síðasta tímabili en ofurtölvan hefur ekki mikla trú á Svörtu köttunum í vetur og spáir því að þeir endi í 15. sæti. Ofurtölvan spáir því að allir nýliðarnir, Coventry City, Ipswich Town og Hull City, stoppi stutt við í ensku úrvalsdeildinni og falli beint niður í B-deildina. Spá ofurtölvu Sky Sports Arsenal Man. City Liverpool Man. Utd. Chelsea Tottenham Aston Villa Everton Brighton Brentford Bournemouth Fulham Newcastle Leeds Sunderland Crystal Palace Nottingham Forest Coventry Ipswich Hull Keppni í ensku úrvalsdeildinni hefst með leik Arsenal og Coventry föstudaginn 21. ágúst. Enski boltinn Mest lesið Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Albert lánaður til Lazio Fótbolti Arteta vill bæta við hópinn í dag Enski boltinn Fleiri fréttir Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Sjá meira
Í tilefni þess að rúm vika er þar til keppni í ensku úrvalsdeildinni hefst ræsti Sky Sports ofurtölvuna og fékk hana til að spá í spilin fyrir komandi tímabil. Samkvæmt spá ofurtölvunnar ver Arsenal meistaratitilinn sem liðið vann í fyrra. Ofurtölvan spáir því að Arsenal endi fjórum stigum ofar en Manchester City sem varð einnig í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili. Liverpool endaði í 5. sæti á síðasta tímabili en ofurtölvan spáir því að Rauði herinn fari upp um tvö sæti undir stjórn nýja stjórans, Andonis Iraola. United mun hins vegar fara úr 3. sætinu niður í það fjórða rætist spá ofurtölvunnar. Andoni Irola er tekinn við Liverpool eftir að hafa gert gott mót með Bournemouth.epa/ADAM VAUGHAN Chelsea, sem hefur farið mikinn á félagaskiptamarkaðnum í sumar, er spáð 5. sætinu en liðið endaði í því tíunda á síðasta tímabili. Þá er því spáð að Tottenham hoppi upp um ellefu sæti frá síðasta tímabili og endi í 6. sætinu. Á meðan Tottenham er mesti hástökkvarinn í spá ofurtölvunnar er því spáð að Sunderland taki mestu dýfuna milli tímabila. Sunderland kom öllum á óvart með því að enda í 7. sæti á síðasta tímabili en ofurtölvan hefur ekki mikla trú á Svörtu köttunum í vetur og spáir því að þeir endi í 15. sæti. Ofurtölvan spáir því að allir nýliðarnir, Coventry City, Ipswich Town og Hull City, stoppi stutt við í ensku úrvalsdeildinni og falli beint niður í B-deildina. Spá ofurtölvu Sky Sports Arsenal Man. City Liverpool Man. Utd. Chelsea Tottenham Aston Villa Everton Brighton Brentford Bournemouth Fulham Newcastle Leeds Sunderland Crystal Palace Nottingham Forest Coventry Ipswich Hull Keppni í ensku úrvalsdeildinni hefst með leik Arsenal og Coventry föstudaginn 21. ágúst.
Arsenal Man. City Liverpool Man. Utd. Chelsea Tottenham Aston Villa Everton Brighton Brentford Bournemouth Fulham Newcastle Leeds Sunderland Crystal Palace Nottingham Forest Coventry Ipswich Hull
Enski boltinn Mest lesið Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Albert lánaður til Lazio Fótbolti Arteta vill bæta við hópinn í dag Enski boltinn Fleiri fréttir Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Sjá meira