Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Agnar Már Másson skrifar 11. ágúst 2026 10:00 Lögreglan hefur varist allra frétta vegna andlátsins við Vallargerði á Kársnesi. Vísir Þriðji maðurinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna meints manndráps á Kársnesi í Kópavogi sem nú er til rannsóknar. Verjandi hans hyggst kæra gæsluvarðhaldsúrskurðinn til Landsréttar. Þrír karlmenn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í tengslum við mannslát í kjölfar líkamsárásar við Vallargerði á Kársnesi í gær, að sögn lögreglu. Um er að ræða tvo erlenda ríkisborgara og einn Íslending. Elimar Hauksson, einn verjenda í málinu, segir að sinn umbjóðandi, sem er erlendur ríkisborgari, hafi verið úrskurðaður í varðhald til klukkan 16 föstudaginn 14. ágúst. „Það er verið að ganga frá kæru til Landsréttar,“ segir Elimar í samtali við Vísi en kveðst að öðru leyti ekki getað tjáð sig efnislega um málið. Elimar Hauksson verjandi.Vísir/Anton Brink Íslenski sakborningurinn var úrskurðaður í varðhald til mánudagsins 17. ágúst, en Vilhjálmur Vilhjálmsson, verjandi hans, sagði hann aðeins hafa „ekið bifreið frá punkti A á punkti B“. Þá var annar erlendur ríkisborgari úrskurðaður í varðhald til 21. ágúst vegna málsins í gær. Ertu með ábendingu eða veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hérna. Fullum trúnaði er heitið. Til rannsóknar er manndráp sem mun hafa verið framið í heimahúsi í Kópavogi um miðjan dag á sunnudag. En eftir að lögreglu var tilkynnt um alvarlega líkamsárás var erlendur ríkisborgari á fimmtugsaldri fluttur á Landspítalann, þar sem hann svo lést síðdegis sama dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu sáu nágrannar tvo menn hlaupa frá húsinu þar sem meintur glæpur mun hafa verið framinn. Einhverjir munu hafa séð dularfullan rauðan bíl, sem hafi um tíma numið staðar í miðri götunni fyrir framan húsið, og þá hafi einhverjir lýst því að mennirnir hafi hlaupið í átt að bílnum. Jafnframt lýsa nágrannar því að hafa heyrt hróp og köll. Skömmu eftir að tilkynnt var um málið um þrjúleytið á sunnudag var einn maður handtekinn. Þá voru fleiri menn handteknir í tenglum við málið í umfangsmikilli lögregluaðgerð í Gnoðarvogi í Reykjavík. Manndráp í Vallargerði á Kársnesi Lögreglumál Kópavogur Dómsmál Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Sjá meira
Þrír karlmenn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í tengslum við mannslát í kjölfar líkamsárásar við Vallargerði á Kársnesi í gær, að sögn lögreglu. Um er að ræða tvo erlenda ríkisborgara og einn Íslending. Elimar Hauksson, einn verjenda í málinu, segir að sinn umbjóðandi, sem er erlendur ríkisborgari, hafi verið úrskurðaður í varðhald til klukkan 16 föstudaginn 14. ágúst. „Það er verið að ganga frá kæru til Landsréttar,“ segir Elimar í samtali við Vísi en kveðst að öðru leyti ekki getað tjáð sig efnislega um málið. Elimar Hauksson verjandi.Vísir/Anton Brink Íslenski sakborningurinn var úrskurðaður í varðhald til mánudagsins 17. ágúst, en Vilhjálmur Vilhjálmsson, verjandi hans, sagði hann aðeins hafa „ekið bifreið frá punkti A á punkti B“. Þá var annar erlendur ríkisborgari úrskurðaður í varðhald til 21. ágúst vegna málsins í gær. Ertu með ábendingu eða veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hérna. Fullum trúnaði er heitið. Til rannsóknar er manndráp sem mun hafa verið framið í heimahúsi í Kópavogi um miðjan dag á sunnudag. En eftir að lögreglu var tilkynnt um alvarlega líkamsárás var erlendur ríkisborgari á fimmtugsaldri fluttur á Landspítalann, þar sem hann svo lést síðdegis sama dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu sáu nágrannar tvo menn hlaupa frá húsinu þar sem meintur glæpur mun hafa verið framinn. Einhverjir munu hafa séð dularfullan rauðan bíl, sem hafi um tíma numið staðar í miðri götunni fyrir framan húsið, og þá hafi einhverjir lýst því að mennirnir hafi hlaupið í átt að bílnum. Jafnframt lýsa nágrannar því að hafa heyrt hróp og köll. Skömmu eftir að tilkynnt var um málið um þrjúleytið á sunnudag var einn maður handtekinn. Þá voru fleiri menn handteknir í tenglum við málið í umfangsmikilli lögregluaðgerð í Gnoðarvogi í Reykjavík.
Ertu með ábendingu eða veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hérna. Fullum trúnaði er heitið.
Manndráp í Vallargerði á Kársnesi Lögreglumál Kópavogur Dómsmál Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Sjá meira