Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. júlí 2026 16:07 Delve er hugbúnaður hjá Microsoft 365 sem er ekki lengur hluti af framboði fyrirtækisins. Persónuvernd telur ósannað að BL ehf. hafi rafrænt vaktað starfsmenn sem taldi að samstarfsfólk hennar hjá bílaumboðinu gæti fylgst með því sem hún gerði í tölvu sinni og lesið viðkvæmar upplýsingar. Persónuvernd taldi grun konunnar ekki geta staðist tæknilega skoðun.
Konan kærði málið til Persónuverndar í janúar 2024 og taldi sig hafa sætt ólögmætri rafrænni vöktun í gegnum Microsoft-hugbúnað sem kallast Delve. Delve sýndi notendum yfirlit yfir skjöl sem þeir höfðu aðgang að, bæði þeirra eigin og önnur sem hafði verið deilt með þeim og fylgdi hverju skjali svokölluð áhorfstala. Töldu aðeins konuna hafa opnað skjalið Konan taldi að þessi áhorfstala segði til um hversu margir aðrir en hún sjálf hefðu skoðað skjölin hennar. Þegar hún sá að skjal á skjáborðinu hennar, sem geymdi lykilorð hennar, hafði verið opnað þrettán sinnum, dró hún þá ályktun að þrettán samstarfsmenn hefðu séð lykilorðið. Persónuvernd komst hins vegar að öndverðri niðurstöðu því talan segði til um hve oft það hefði verið opnað, þar með talið af eiganda skjalsins. Ekkert benti til þess að nokkur annar en konan hefði opnað það. Sami misskilningur virðist hafa legið til grundvallar öðrum þáttum kvörtunarinnar. Konan taldi að allt sem hún vistaði á skjáborði sínu færi sjálfkrafa inn á „sameiginlegt OneDrive“ fyrirtækisins sem samstarfsfólk gæti flett í gegnum, þar á meðal læknisvottorð með viðkvæmum persónuupplýsingum, starfsmannasamtöl og launaseðlar. Persónuvernd fann engin gögn sem bentu til þess að slíkt sameiginlegt drif væri yfirhöfuð til heldur aðeins persónulegt OneDrive sem hverjum starfsmanni var úthlutað með aðgangsstýringum sem sýndu að hópurinn „allir“ hefði engar virkar heimildir að skjáborði hennar. Skjalinu líklega deilt með konunni Meðal gagna sem konan kom til persónuverndar máli sínu til stuðnings var mynd af notendaprófíl samstarfskonu hennar í Delve. Þar mátti sjá tilvísun í skjal á OneDrive samstarfskonunnar. Konan taldi þetta sönnun þess að aðgangsstýringar væru í ólagi. Persónuvernd benti á að Delve sýndi eingöngu skjöl sem notandinn sjálfur hefði aðgang að. Þannig sannaði myndin fyrst og fremst að konan sjálf hefði fengið aðgang að skjali samstarfskonunnar. Því hefði að líkindum verið deilt með henni. Persónuvernd taldi ósannað að BL hefði viðhaft rafræna vöktun eða að samstarfsfólkið hefði séð persónuupplýsingar. Þá taldi stofnunin að BL hefði sýnt fram á að aðgangsstýringar hefðu tryggt viðunandi öryggi persónuupplýsinga í samræmi við lög um persónuvernd.
Persónuvernd Tækni Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira