„Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Freyja Þórisdóttir skrifar 21. júlí 2026 11:18 Bréfið var skrifað örfáun dögum áður en skipið fórst. Getty/Henry Aldridge & Son Ltd Bréf sem var skrifað af farþega skipsins Titanic dögum áður en hann lést verður boðið upp á sunndaginn og er áætlað að um sex milljónir fáist fyrir það. Í bréfinu, sem er dagsett miðvikudaginn 10. apríl það örlagaríka ár 1912 og póststimplað í Queenstown, skrifaði hann um gott veður og góðan anda um borð í skipinu. Henry Price Hodges skrifaði bréfið til vinar síns, Hectors Young sem var með honum í Newtown Conservative félaginu, en Hodges fór um borð í skipið í bresku hafnarborginni Southampton sem farþegi á öðru farrými. Farmiðann hafði hann borgað þrettán pund fyrir, eða um tvö hundruð og tuttugu þúsund krónur íslenskar, og var hann á leið til Boston til að heimsækja ættingja sem farþegi númer 250643. Þetta kemur meðal annars fram í umfjöllun breska ríkisútvarpsins (BBC) um málið. Vonsvikinn að pabbi kom ekki með Síðasta viðkomuhöfn Titanic þann 11. apríl 1912 áður en skipið lagði af stað yfir Atlantshafið var bærinn Queenstown í Cork-sýslu á Írlandi sem nú heitir Cobh. Herra Hodges skrifaði í bréfinu til vinar síns: „Kæri Hector, „Kærar þakkir fyrir símskeytið og fyrir góðar óskir. Þetta var vingjarnlegt og hugulsamt og ég kann vel að meta það, og viltu koma þökkum mínum á framfæri við félagsmenn okkar. „Var það ekki gott af forsetanum að koma og kveðja mig? Ég held næstum að ég hefði getað sannfært hann um að koma með. Við höfum haft það fínt hingað til. „Maður finnur ekkert fyrir hreyfingum skipsins, en veðrið er mjög gott. „Á efsta þilfari eru um tvö hundruð strákar (frá 20 ára aldri og upp úr) sem ganga um og syngja, aðrir spila dómínó og spil í setustofunum, sumir lesa, sumir skrifa, allt er allt öðruvísi en maður myndi búast við að sjá á sjó. „Segðu pabba þínum að ég sé mjög vonsvikinn að hann hafi ekki komið, en ég veit að hann gat ekki að því gert, og það var meira en búist var við að bróðir þinn kæmi í staðinn. (Allt fyrir þetta en ekki hann) Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur. „Vertu sæll Hector „Bestu kveðjur „Með vinsemd og virðingu „H.P. Hodges.“ Hodges lést eftir að Titanic sökk fimm dögum seinna, þann 15. apríl 1912. Bréfið verður boðið upp hjá Henry Aldridge and Son í Devizes, Wiltshire, á sunnudaginn kemur, þann 26. júlí, er fram kemur í umfjöllun BBC. Þar er einnig haft eftir umsjónarmanni uppboðsins Andrew Aldridge að bréf skrifuð af farþegum á öðru farrými væru með þeim sjaldgæfustu. „Þetta bréf gefur okkur sögulega ómetanlega innsýn í hvernig lífið var um borð í frægasta skipi sem siglt hefur á höfunum fyrir farþega á öðru farrými,“ sagði hann og er bætt við að Hodges „lýsir skipinu og samfarþegum og hvernig þeir eyddu tímanumum borð. Samt, rúmum fjórum dögum síðar, lá Titanic á botni Norður-Atlantshafsins.“ Titanic Bretland Hafið Bandaríkin Mest lesið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Fleiri fréttir Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Sjá meira
Henry Price Hodges skrifaði bréfið til vinar síns, Hectors Young sem var með honum í Newtown Conservative félaginu, en Hodges fór um borð í skipið í bresku hafnarborginni Southampton sem farþegi á öðru farrými. Farmiðann hafði hann borgað þrettán pund fyrir, eða um tvö hundruð og tuttugu þúsund krónur íslenskar, og var hann á leið til Boston til að heimsækja ættingja sem farþegi númer 250643. Þetta kemur meðal annars fram í umfjöllun breska ríkisútvarpsins (BBC) um málið. Vonsvikinn að pabbi kom ekki með Síðasta viðkomuhöfn Titanic þann 11. apríl 1912 áður en skipið lagði af stað yfir Atlantshafið var bærinn Queenstown í Cork-sýslu á Írlandi sem nú heitir Cobh. Herra Hodges skrifaði í bréfinu til vinar síns: „Kæri Hector, „Kærar þakkir fyrir símskeytið og fyrir góðar óskir. Þetta var vingjarnlegt og hugulsamt og ég kann vel að meta það, og viltu koma þökkum mínum á framfæri við félagsmenn okkar. „Var það ekki gott af forsetanum að koma og kveðja mig? Ég held næstum að ég hefði getað sannfært hann um að koma með. Við höfum haft það fínt hingað til. „Maður finnur ekkert fyrir hreyfingum skipsins, en veðrið er mjög gott. „Á efsta þilfari eru um tvö hundruð strákar (frá 20 ára aldri og upp úr) sem ganga um og syngja, aðrir spila dómínó og spil í setustofunum, sumir lesa, sumir skrifa, allt er allt öðruvísi en maður myndi búast við að sjá á sjó. „Segðu pabba þínum að ég sé mjög vonsvikinn að hann hafi ekki komið, en ég veit að hann gat ekki að því gert, og það var meira en búist var við að bróðir þinn kæmi í staðinn. (Allt fyrir þetta en ekki hann) Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur. „Vertu sæll Hector „Bestu kveðjur „Með vinsemd og virðingu „H.P. Hodges.“ Hodges lést eftir að Titanic sökk fimm dögum seinna, þann 15. apríl 1912. Bréfið verður boðið upp hjá Henry Aldridge and Son í Devizes, Wiltshire, á sunnudaginn kemur, þann 26. júlí, er fram kemur í umfjöllun BBC. Þar er einnig haft eftir umsjónarmanni uppboðsins Andrew Aldridge að bréf skrifuð af farþegum á öðru farrými væru með þeim sjaldgæfustu. „Þetta bréf gefur okkur sögulega ómetanlega innsýn í hvernig lífið var um borð í frægasta skipi sem siglt hefur á höfunum fyrir farþega á öðru farrými,“ sagði hann og er bætt við að Hodges „lýsir skipinu og samfarþegum og hvernig þeir eyddu tímanumum borð. Samt, rúmum fjórum dögum síðar, lá Titanic á botni Norður-Atlantshafsins.“
„Kæri Hector, „Kærar þakkir fyrir símskeytið og fyrir góðar óskir. Þetta var vingjarnlegt og hugulsamt og ég kann vel að meta það, og viltu koma þökkum mínum á framfæri við félagsmenn okkar. „Var það ekki gott af forsetanum að koma og kveðja mig? Ég held næstum að ég hefði getað sannfært hann um að koma með. Við höfum haft það fínt hingað til. „Maður finnur ekkert fyrir hreyfingum skipsins, en veðrið er mjög gott. „Á efsta þilfari eru um tvö hundruð strákar (frá 20 ára aldri og upp úr) sem ganga um og syngja, aðrir spila dómínó og spil í setustofunum, sumir lesa, sumir skrifa, allt er allt öðruvísi en maður myndi búast við að sjá á sjó. „Segðu pabba þínum að ég sé mjög vonsvikinn að hann hafi ekki komið, en ég veit að hann gat ekki að því gert, og það var meira en búist var við að bróðir þinn kæmi í staðinn. (Allt fyrir þetta en ekki hann) Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur. „Vertu sæll Hector „Bestu kveðjur „Með vinsemd og virðingu „H.P. Hodges.“
Titanic Bretland Hafið Bandaríkin Mest lesið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Fleiri fréttir Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Sjá meira