Fá að skoða sjúkraskrár Tigers Woods Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júlí 2026 16:01 Tiger Woods sást opinberlega á dögunum en það var í fyrsta sinn frá slysinu. Getty/ ames Gilbert Dómari hefur nú úrskurðað að saksóknurum sé heimilt að skoða sjúkraskrár sem tengjast bílslysi Tiger Woods í mars.
Tiger var handtekinn í kjölfar bílslyssins vegna gruns um akstur undir áhrifum. Dómarinn Darren Steele samþykkti í síðustu viku samkomulag milli verjanda Woods og ríkissaksóknaraembættisins sem heimilar saksóknurum að óska eftir gögnum frá Cleveland Clinic Martin South-sjúkrahúsinu, þangað sem Woods var fluttur eftir slysið 27. mars. Dómarinn samþykkti svipað samkomulag í maí sem veitir saksóknurum aðgang að öllum lyfseðilsskyldum lyfjagögnum Tigers í apóteki í Palm Beach frá áramótum til loka mars. Judge in Tiger Woods' DUI case issues major ruling on golf legend's hospital records from his rollover crash https://t.co/QWhQdRODGr— Daily Mail Sport (@MailSport) July 3, 2026 Varðandi sjúkrahúss- og lyfseðilsgögn hafa saksóknarar fallist á beiðni verjandans Doug Duncan um að takmarka afhendingu gagna við saksóknara, lögreglumenn, sérfræðinga ríkisins og verjendateymi Woods. Woods hefur lýst sig saklausan af akstri undir áhrifum. Í skýrslu frá skrifstofu sýslumanns kom fram að lögreglumenn hefðu fundið tvær verkjatöflur í vasa hans og að hann hefði sýnt merki um skerta dómgreind eftir að jeppi hans rakst á kerru vörubíls og valt á hliðina. TIGER WOODS CASE UPDATE 🐅⚖️ | Tiger Woods' hospital records to be turned over to prosecutors under court order. Read more: https://t.co/7acrUVqKcs ⬅️🔗 pic.twitter.com/JFwVb7xwa5— WPEC CBS12 News (@CBS12) July 2, 2026 Woods var á miklum hraða á íbúðargötu við ströndina á Jupiter Island, þar sem hámarkshraði er 48 kílómetrar á klukkustund, þegar Land Rover-jeppi hans olli fimm þúsund dollara tjóni á vörubílnum, 630 þúsund króna tjóni í íslenskum krónum, samkvæmt atvikaskýrslu. Woods samþykkti að gangast undir öndunarpróf sem sýndi engin merki um áfengi en neitaði þvagprufu, að sögn yfirvalda. Woods fór úr landi til að leita sér meðferðar á meðferðarstofnun í Sviss. Hann kom fyrst fram opinberlega frá handtökunni þegar hann heimsótti PGA Tour-mótið á Travelers Championship í Connecticut í síðustu viku, þar sem hann kynnti forstjórann Brian Rolapp, sem tilkynnti um breytingar á framtíðarkeppnisfyrirkomulagi PGA Tour fyrir mótið. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=dwXVev3jk7U">watch on YouTube</a>
Golf Bílslys Tigers Woods Mest lesið Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Íslenski boltinn Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Íslenski boltinn „Mikil framför en því miður ekki nóg“ Körfubolti „Margt sem við þurfum að laga“ Körfubolti Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Körfubolti Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn KA-menn brotlentu í Garðabæ Handbolti Fleiri fréttir Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Evrópa hafði betur gegn Bandaríkjunum Horfðu á golfmót í körfubíl Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Enduðu tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Sjá meira