Aðflæðisvandinn Finnur Pálmi Magnússon skrifar 23. júní 2026 22:30 Ímyndum okkur stöðuvatn sem er að mengast. Fiskurinn drepst, vatnið gruggugt og fólkið í þorpinu hefur áhyggjur. Tvær leiðir blasa við. Sú fyrri er að róa út á vatnið og ausa menguninni upp með háf, dag eftir dag, ár eftir ár. Sú síðari er að ganga upp með ánni, finna verksmiðjuna sem dælir menguninni og stöðva upptökin. Báðar leiðir eru erfiðar, en önnur þeirra tekur aldrei enda. Of stór hluti af heilbrigðis- og velferðarþjónustu okkar snýst um að róa út á vatnið með háf. Við bregðumst við þegar vandinn er orðinn sýnilegur, þegar einstaklingurinn er kominn á bráðamóttöku, þegar aðstandandinn er að niðurlotum kominn, þegar ekkert er eftir nema dýrasta úrræðið sem er oft skaðlegra en að halda fólki í virkni. Í umræðunni köllum við þetta fráflæðisvanda, fólkið sem kemst hvorki út af spítalanum, heim né inn á hjúkrunarheimili. En fráflæðisvandinn er einkenni með staðvilluverkjum. Upptökin liggja ofar í ánni. Þau eru aðflæðisvandinn. Allt það sem við grípum ekki í tæka tíð. Hvergi er þetta skýrara en þegar kemur að heilabilun. Nú liggja fyrir drög stjórnvalda að aðgerðaáætlun um þjónustu við fólk með heilabilun til ársins 2030. Áætlunin er vel unnin og stefnan er rétt: áhersla á forvarnir, snemmtæka íhlutun, virkni og öflugan, landsþekjandi gagnagrunn. En áherslan er að mínu mati helst til of mikil á að kljást við afleiðingarnar. Flest sem greinast með heilabilun búa heima, oft árum saman. Stærsti hluti þeirrar þjónustu sem þau fá fer ekki fram hjá lækni eða heilsugæslu, heldur við eldhúsborðið heima. Það er starfsfólk félagslegrar heimaþjónustu og að einhverju leyti heimahjúkrun sem kemur inn á heimilið, oft mörgum sinnum í viku, og sér manneskjuna í hennar eigin umhverfi. Læknirinn sér hana í stuttri heimsókn með margra mánaða millibili. Og það er einmitt þar, í daglegu lífi, sem fyrstu merkin sjást. Breytingar á því hvernig fólk talar, gengur, eldar, heldur utan um fjármálin, notar símann eða sinnir heimilinu eru meðal fyrstu og skýrustu vísbendinga um yfirvofandi heilabilun. Þær geta komið fram allt að áratug áður en formleg greining liggur fyrir. Enginn annar í þjónustukeðjunni er í jafn góðri stöðu til að taka eftir þeim. Nýlegar rannsóknir benda einnig til þess að aukin virkni og endurhæfing geti hægt verulega á hrörnun heilastarfsemi þegar hún greinist snemma. Heimaþjónustan er, með öðrum orðum, augu og hendur kerfisins á milli læknisheimsókna. Vandinn er sá að við nýtum þessi augu ekki nægilega vel. Athuganir starfsfólksins eru sjaldan skráðar með skipulegum hætti og berast enn sjaldnar áfram til þeirra sem greina og taka ákvarðanir. Verðmætasta upplýsingin í öllu ferlinu fer beint í glatkistuna. Aðrar þjóðir eru komnar lengra. Í Kanada er lagt einfalt, staðlað mat fyrir alla sem fá heimaþjónustu, og þau gögn eru nú notuð til að fylgjast með vitrænni færni fólks yfir tíma og sjá hrörnun fyrir. Í Bandaríkjunum hefur þungamiðjan færst markvisst heim: árið 1990 fór um 90% af opinberum útgjöldum til langtímaþjónustu í stofnanir, en árið 2020 fór 62% þeirra í þjónustu heima og í nærsamfélaginu. Nýtt landsátak þar skilgreinir fræðslu og þjálfun fyrir aðstandendur sem eiginlega þjónustu, ekki aukaatriði, enda bera þau oftast þyngstu byrðina. Danmörk og Noregur hafa fetað sömu slóð. Lærdómurinn er alls staðar sá sami: árangurinn ræðst af því hversu öflug og samþætt þjónustan inn á heimilið er. Tillagan er einföld og kallar hvorki á nýjar stofnanir né ný úrræði. Gefum félagslegri heimaþjónustu skilgreint hlutverk í áætluninni. Söfnum stöðluðum upplýsingum sem starfsfólk skráir reglulega og rennur inn í gagnagrunninn, svo hann nái líka yfir árin sem fólk býr heima. Þjálfum starfsfólk í að þekkja fyrstu einkennin og koma þeim í réttan farveg. Og styðjum aðstandendur með fræðslu og hvíld áður en þeir bugast. Þetta snýst ekki um meiri tækni eða stærri kerfi. Það snýst um að virkja þjónustu sem fer nú þegar inn á þúsundir heimila í hverri viku og breyta henni í virkan þátttakanda í greiningu og eftirfylgni. Við getum haldið áfram að róa út á vatnið með háf. Það verður seint sagt að við gerum ekki neitt; við munum hafa ærinn starfa um ókomna tíð. En vandann leysum við ekki þannig. Til þess þarf að rölta upp með ánni og byrja heima. Höfundur er framkvæmdastjóri og stofnandi Dala.care, sem þróar hugbúnað fyrir heimaþjónustu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Kanada Bandaríkin Danmörk Noregur Tækni Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar