Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Agnar Már Másson skrifar 21. júní 2026 14:46 Hitnar undir Keir Starmer. Breskir fjölmiðlar segja að Keir Starmer ætli að segja af sér sem forsætisráðherra Bretlands. Þetta muni hann líklega tilkynna á morgun, að sögn Guardian. Donald Trump Bandaríkjaforseti blandar sér einnig í málið og fullyrðir að Starmer muni segja af sér.
Ólga hefur verið innan ríkisstjórnar Bretlands síðustu daga, einkum eftir að Andy Burnham var nýlega kjörinn aftur inn á þing en hann hefur verið orðaður við formennsku í Verkamannaflokknum, sem Starmer leiðir í dag. Fyrr í dag hafði Sky News eftir heimildum að Yvette Cooper utanríkisráðherra hefði krafið hann afsagnar. BBC greindi frá því á föstudag að samgönguráðherrann Heidi Alexander átt svipað samtal við Starmer. Fjölmiðlarnir Guardian og Observer greina meðal annars frá því að búist sé við því að Starmer tilkynni um afsögn sína á morgun, mánudag, en öll spjót hafa beinst að honum síðustu daga og var hann sagður myndu íhuga stöðu sína nú um helgina. Starmer er sagður verja helginni með fjölskyldu sinni í Chequers en viðskiptaráðherrann Peter Kyle sagði við Sky að Keir Starmer hugsi nú sinn gang. Engu að síður segir forsætisráðuneytið að Starmer ætli að halda áfram og hefur um helgina svarað fjöliðlafyrirspurnum með því að vísa í ummæli Starmers frá því á föstudag, þegar hann sagði að hann myndi ekki víkja undan ef kæmi til leiðtogaslags. Trump: Starmer „mistekist illa“ Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur einnig blandað sér í málið. „Keir Starmer mun segja af sér sem ráðherra Bretlands. Honum hefur mistekist illa í tveimur mikilvægum málaflokkum, INNFLYTJENDAMÁLUM OG ORKUMÁLUM (OPNUM FYRIR OLÍU Á NORÐURHAFI!). Ég óska honum góðs!“ skrifar Trump á Truth Social. Ekki er vitað hvað Trump hefur fyrir sér í þessum efnum annað en það sem breskir fjölmiðlar hafa greint frá, en samráðherrar Starmers hafa margir þrýst á hann að segja af sér. Donald Trump Bandaríkjaforseti fullyrðir að Starmer muni segja af sér.Getty Ráðherrar krefjast afsagnar BBC greindi frá því á föstudag að samgönguráðherrann Heidi Alexander hefði átt samtal við Starmer á bak við luktar dyr þar sem hún hefði beðið hann um að leggja fram tímaáætlun um að láta af embætti. Það væri til þess að tryggja skilvirk stjórnarskipti við næsta leiðtoga. Tveir aðrir ráðherrar, Ed Miliband og Shabana Mahmood, hafa áður krafið hann um slíka tímaáætlun. Guardian hafði eftir ónafngreindum heimildarmanni í ríkisstjórn Starmers á föstudag: „Allir telja að þetta sé búið og allir vilja að þetta brotthvarf verði snyrtilegt og gert af reisn.“
Bretland Donald Trump Mest lesið „Ég er skrímsli“ Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Innlent Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Vara við snörpum vindhviðum Veður Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Erlent Fleiri fréttir Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Sjá meira