Golf

Fylgstu með þessu á sögu­legu U.S. Open móti fyrir Ís­lendinga

Aron Guðmundsson skrifar
Gunnlaugur Árni æfir sig hér á Shinnecock vellinum fyrir stóra daginn í dag
Gunnlaugur Árni æfir sig hér á Shinnecock vellinum fyrir stóra daginn í dag Vísir/Getty

U.S. Open risamótið hefst í dag og stefnir í afar spennandi mót. Gunnlaugur Árni mætir til leiks, fyrstu Íslendinga í sögunni og sterkir kylfingar geta náð merkum áfanga á mótinu. Hvaða áhrif mun síðan erfiður völlur og veðurfar hafa? 

U.S. Open verður sýnt í beinni útsendingu á Sýn Sport. Útsending frá fyrsta hring hefst klukkan fjögur í dag. Gunnlaugur Árni átti af stað í sinn hring klukkan 18.20 en tveggja klukkustunda frestun í morgun vegna þoku gæti sett strik í reikninginn. Á morgun verður lengri útsending frá mótinu sem hefst klukkan 12.30 um það leiti sem Gunnlaugur á að hefja sinn annan hring. 

Opnar nýjan kafla í íslenskri íþróttasögu

Aðal sögulínan fyrir okkur Íslendinga er náttúrulega þátttaka Gunnlaugs Árna Sveinssonar á mótinu. Gunnlaugur verður fyrsti Íslendingurinn til þess að taka þátt á þessu risamóti. 

Gunnlaugur Árni hefur verið að gera frábæra hluti upp á síðkastiðVísir/Getty

Gunnlaugur hefur gert það gott í háskólagolfinu og sýndi frábæra takta á lokaúrtökumótinu í síðustu viku. Efstu sextíu kylfingarnir, að meðtöldum jöfnum skorum, komast í gegnum niðurskurð eftir fyrstu tvo keppnisdaga mótsins. 

Það verður gaman að sjá Gunnlaug spreita sig á móti þeim bestu í bransanum. Hver veit? Kannski nær hann að valda usla.  

Alslemma og þrítugsafmæli?

Scottie Scheffler, efsti maður heimslistans um þessar mundir, getur með sigri á U.S. Open tryggt sér alslemmuna. Það er að verða sjöundi kylfingurinn frá upphafi til þess að hafa unnið öll risamótin í golfi. 

Scottie Scheffler er besti kylfingur í heimi samkvæmt heimslistanumTerence Lewis/Icon Sportswire via Getty Images

Bandaríkjamaðurinn vann tvö risamót á síðasta ári og getur gert næskomandi sunnudag ógleymanlegan fyrir sig. Því ekki er nóg með að sunnudagurinn sé lokadagur U.S. Open heldur verður Scheffler einnig þrítugur þann dag. 

Sjöundi risatitill Rory?

Norður-Írinn Rory McIlroy mun freista þess að vinna enn eitt risamótið um helgina. McIlroy tryggði sér alslemmuna fyrr á árinu með sigri á Masters-mótinu en langt er síðan að hann vann U.S. Open í fyrsta og eina skiptið til þessa, árið 2011. 

McIlroy er til alls líklegurVísir/Getty

Með sigri kemur hann sér í færi á annarri alslemmu sem er fáheyrt í golfheiminum og aðeins Jack Nicklaus og Tiger Woods hafa náð. Ætti þá AÐEINS eftir einn sigur til viðbótar á Opna breska meistaramótinu. 

Völlurinn og veðrið 

Það sem allir eru að spá í fyrir fyrsta keppnisdaginn á U.S. Open. Hvernig verður völlurinn og hversu mikil áhrif mun veðrið hafa?

Í síðustu tvö skipti sem U.S. Open hefur verið haldið á Shinnecock vellinum hafa kylingar lent í vandræðum. Völlurinn er þekktur fyrir að vera afar erfiður viðureignar. 

Þá getur veðrið haft mikil áhrif. Dagana fyrir mót hafa kylfingar fengið að kynnast sterkum vindi á svæðinu og spáð er áframhaldandi sterkum hviðum núna í upphafi móts. 


Tengdar fréttir

Íslendingarnir fengu mjög góð ráð frá Patrick Reed

Gunnlaugur Árni Sveinsson þarf að eiga meira en góð högg til að hitta flatirnar á Shinnecock Hills, þegar hann verður fyrstur Íslendinga til að keppa á Opna bandaríska mótinu í golfi á morgun. Hann býr núna að góðum ráðum frá Patrick Reed sem þekkir það að vinna risamót.

„Ís­land ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“

Gunn­laugur Árni Sveins­son er klár í stóra sviðið sem U.S. Open risamótið í golfi er. Þetta segir þjálfari hans við LSU háskólann í Bandaríkjunum. Gunn­laugur sé með nálgun at­vinnu­manns og geti nú sýnt heiminum hversu góður kylfingur hann sé.

At­hyglin mun meiri en Gunn­laugur með báða fætur á jörðinni

Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson fær nú umtalsvert meiri athygli frá fjölmiðlum og viðskiptatengdum aðilum nú þegar dregur nær fyrsta risamóti hans á ferlinum. Umboðsmaður Gunnlaugs segir hann með báða fætur á jörðinni.

Gunnlaugur æfði óvænt með DeChambeau og Reed

Gunnlaugur Árni Sveinsson fær frábæran undirbúning fyrir Opna bandaríska meistaramótið í golfi. Fyrir æfingahringinn með besta kylfingi heims fékk hann óvænt að æfa með Bryson DeChambeu og Patrick Reed.

Gunn­laugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open

Gunnlaugur Árni Sveinsson fær dýrmæta reynslu í aðdraganda síns fyrsta risamóts á golfferlinum. Hann mun taka æfingarhring með besta kylfingi heims um þessar mundir, Scottie Scheffler. Þjálfari Gunnlaugs hjá LSU segir hann tilbúinn fyrir stóra sviðið. 

Á sama sviði og hetjurnar: „Verður ótrú­lega skemmti­legt að upp­lifa“

Gunnlaugur Árni Sveinsson varð á dögunum fyrsti íslenski kylfingurinn til að tryggja sig inn á US Open risamótið í karlaflokki. Kappinn fann á sér á keppnisdeginum að þetta yrði hans dagur, mótlæti braut hann ekki, heldur efldist hann bara við það. Mót með þeim bestu í heimi bíður.

Stoltir foreldrar: Gunn­laugur „mani­festaði“ birtu eftir erfitt vor

„Þetta er svo ofsalega stórt og ég held að maður átti sig ekki alveg á þessu fyrr en mótið rennur upp eftir rúma viku,“ segir Sveinn Kristinn Ögmundsson, pabbi Gunnlaugs Árna sem fyrstur íslenskra karla vann sig inn á Opna bandaríska mótið í golfi. Foreldrar Gunnlaugs Árna mættu í Bítið á Bylgjunni, eðlilega að rifna úr stolti.

Risa af­rek Gunn­laugs og saman­burður við þá bestu áhuga­verður

Gunn­laugur Árni Sveins­son tryggði sér í fyrradag, fyrstur Ís­lendinga, sæti á U.S. Open risamótinu í golfi í karla­flokki eftir bráða­bana á úrtökumóti í Ohio í Bandaríkjunum. Risastór tíðindi sem koma þó ekki einum helsta golfsér­fræðingi landsins á óvart. Þetta sé ekki endastöð hjá Gunn­laugi, bara byrjunin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×