Íslendingarnir fengu mjög góð ráð frá Patrick Reed Sindri Sverrisson skrifar 17. júní 2026 15:29 Gunnlaugur Árni Sveinsson og Patrick Reed spiluðu saman æfingahring á sunnudaginn. Samsett/Getty Gunnlaugur Árni Sveinsson þarf að eiga meira en góð högg til að hitta flatirnar á Shinnecock Hills, þegar hann verður fyrstur Íslendinga til að keppa á Opna bandaríska mótinu í golfi á morgun. Hann býr núna að góðum ráðum frá Patrick Reed sem þekkir það að vinna risamót.
Þetta segir Sigmundur Einar Másson sem er í þjálfarateymi Gunnlaugs Árna og er mættur á mótið. Hann ræddi við fulltrúa GSÍ fyrir síðasta æfingahringinn áður en mótið sjálft hefst á morgun, þar sem Gunnlaugur Árni fer af stað um klukkan 18:20 að íslenskum tíma. Mótið er í beinni útsendingu á Sýn Sport. Opna bandaríska mótið er þekkt sem það erfiðasta af risamótunum fjórum þar sem völlurinn er jafnan svo krefjandi að eðlilegt getur verið að vinna mótið með því að spila á pari. Í þetta sinn er spilað á Shinnecock Hills, í Southampton í New York-fylki. „Undirbúningurinn fyrir mót fólst í að kynnast aðeins brautunum – vita hvernig þær liggja, hvernig vindáttirnar eru og hverjar lengdirnar eru á brautunum. Þegar komið er á staðinn er verið að skoða svæðin á flötunum og í kringum þær, og hvar séu góðir staðir til að vera á,“ segir Sigmundur um undirbúninginn. „Við áttum frábæran hring á sunnudaginn þar sem við spiluðum með Patrick Reed. Hann og kylfusveinninn hans hjálpuðu okkur helling við að skilja völlinn og hjálpa til við greiningar á svæðum og annað,“ sagði Sigmundur en Reed hefur meðal annars unnið níu mót á PGA-mótaröðinni, Masters árið 2018 og sama ár endaði hann í 4. sæti á Opna bandaríska sem er hans besti árangur á þessu móti. Vökva flatirnar á milli umferða Sigmundur fór aðeins yfir þær hættur sem leynast á vellinum: „Vindurinn er stór faktor og svo eru það flatirnar. Þessar flatir gera góð golfhögg þannig að þau hitta ekki einu sinni flötina, þar sem svæðin á flötunum eru bara mjög lítil. Það verður skemmtilegast að skoða inn í helgina. Flatirnar verða vökvaðar á milli hringja á morgun og það er eitthvað sem ég held að hafi sjaldan verið gert á US Open, að vallarstarfsmenn séu að bleyta flatir á milli umferða. Þetta verður mjög gaman að sjá og segir okkur að það er viss hræðsla við vindinn á morgun, og flatirnar hérna geta verið mjög athyglisverðar,“ sagði Sigmundur sem eins og aðrir Íslendingar bíður spenntur eftir stóru stundinni á morgun. „Eigum að njóta þess að fylgjast með“ „Ég held að þetta verði bara frábær skemmtun. Það er stórkostlegt að við séum komin með Íslending hérna að keppa. Við eigum að njóta þess að sjá þetta og fylgjast með. Maður heyrir það á keppendum, kylfuframleiðendum og þjálfurum að það er rosaleg virðing fyrir vellinum. Það gleymir enginn hvað gerðist hér á laugardegi 2018, þegar enginn spilaði undir pari. US Open vinnst vanalega á skori sem er í kringum par, svo það að fá nokkra skolla og annað er bara partur af golfinu á US Open.“
Golf Opna bandaríska Mest lesið UEFA logar í ljósi áforma Infantino: „Sál fótboltans ekki til sölu“ Fótbolti Gylfi ósáttur: „Ótrúleg ákvörðun hjá KSÍ“ Sport Kröfur umboðsmanns Salah valda vandræðum Fótbolti Besti handboltamaður heims fór í markið Handbolti Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Enski boltinn Stones sagður hafa náð samkomulagi við Inter Fótbolti Sölvi keyptur til KR Íslenski boltinn Sjáðu Ágúst Orra tryggja Breiðabliki sigur og viðhalda ótrúlegri tölfræði Íslenski boltinn „Af hverju er þessi leikvangur ekki troðfullur í hvert einasta skipti?“ Fótbolti „Ekki það sem við lögðum upp með“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Guðmundur Oddsson látinn „Ég ætla ekki að segja neitt sem ég má ekki segja“ Rory var „fastur í hlutlausum“ allt mótið og segist vera á leið í frí „Ég fann ekki fyrir neinu við púttið því allt skalf svo mikið“ Scheffler segir DeChambeau „klárlega ekki vera svindlara“ Fox sýndi stáltaugar og vann sitt fyrsta risamót Young flaug inn í toppbaráttuna og Scheffler skammt undan Aron og Guðrún með forystu fyrir lokahringinn McIlroy pirraður á athyglissjúkum DeChambeau Burns leiðir á Birkdale og líkur á sögulegum sigri Sá þriðji sem jafnar vallarmetið Púttin að leika Scheffler grátt DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti DeChambeau einu höggi frá toppsætinu eftir fugla á lokaholunum Íslendingar í stórum hlutverkum á The Open Tveir kylfingar jafna besta hringinn á risamóti Stuttu pútti frá besta hring sögunnar „Of mörg heimskuleg mistök“ Hafði aldrei komið til Evrópu en nú er hann efstur á Opna breska Vonar að hann fái að halda áfram að reykja „Er það ekki fullkominn dagur? Golf og fótbolti“ „Ég sef í bílnum ef ég þarf“ „Ég er svo lélegur í golfi“ Ragnhildur hlaut hálfa milljón í þriðja sæti í Englandi Gunnlaugur Árni íþróttakarl ársins í LSU Íslensku liðin hófu leik á Evrópumótinu í holukeppni Gunnlaugur Árni vann Arnold Palmer-bikarinn Tveir íslenskir kylfingar í efstu tíu sætunum Bjargaði fugli úr tjörn í miðjum golfhring Sjá meira