„Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Aron Guðmundsson skrifar 17. júní 2026 08:02 Jake Amos er þjálfari Gunnlaugs Árna hjá LSU. Hann tók fyrst eftir Íslendingnum þegar Gunnlaugur var 16 ára gamall. Vísir/Samsett Gunnlaugur Árni Sveinsson er klár í stóra sviðið sem U.S. Open risamótið í golfi er. Þetta segir þjálfari hans við LSU háskólann í Bandaríkjunum. Gunnlaugur sé með nálgun atvinnumanns og geti nú sýnt heiminum hversu góður kylfingur hann sé.
Gunnlaugur hefur undanfarin tvö ár verið að gera frábæra hluti í háskólagolfinu með liði LSU í Bandaríkjunum og er hann einn besti áhugakylfingur i heimi. Framundan er fyrsta risamótið, US Open á fimmtudaginn kemur og hann er klár fyrir það svið. U.S. Open risamótið verður sýnt í beinni útsendingu á Sýn Sport. „Fyrir okkur í þessari LSU búbblu sem og á Íslandi vita allir hversu góður kylfingur hann er,“ segir Jake Amos, þjálfari Gunnlaugs Árna hjá LSU háskólanum í samtali við íþróttadeild Sýnar „Það vita allir hvað hann hefur gert undanfarin tvö ár í háskólagolfinu, hver þróun hans hefur verið. Hann á hins vegar eftir að sýna sig á stóra sviðinu í golfheiminum. Núna er hann með það tækifæri. Fólk mun fá að vita meira um hann, hinn almenni golfáhugamaður um allan heim mun sjá meira af honum. Sveiflan hans er frábær. Spilamennskan býr í honum til að vera samkeppnishæfur á risamóti. Hvað hann og ferilinn varðar snýst þetta bara um sviðið til að geta sýnt sig á. Hann hefur það tækifæri núna. Getur sýnt heiminum hversu góður hann er.“ Íslendingar megi vera stoltir af Gunnlaugi Gunnlaugur Árni sé með frábært hugarfar, hugarfar atvinnukylfings. „Gunnlaugur Árni er með frábært hugarfar. Hann er einn þroskaðasti krakki sem ég hef á ævi minni hitt. Allt það sem hann hefur gert hingað til hefur gert hann kláran fyrir þetta tækifæri. Hann er með nálgun atvinnumanns að því hvernig hann hagar sínu lífi. Það nær stundum á þann stað að við þurfum að minna hann á að það er skemmtilegt að spila golf. Að hann þurfi að halda áfram að skemmta sér að því að spila golf. Hann er bara svo metnaðarfullur. Íslendingar ættu að vera mjög stoltir af sínum manni. Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel. Bara ef við skoðum veðurfarslegar aðstæður og söguna. Hann er að brjóta niður múra og á möguleika á því að verða fyrsta flokks kylfingur. Þetta er rós í hnappagatið hjá þjálfurum hans á Íslandi.“ Gunnlaugur Árni æfir sig hér á Shinnecock vellinum fyrir stóra daginn á fimmtudaginn kemurVísir/Getty En hversu langt getur Gunnlaugur náð í íþróttinni? „Eins og staðan er núna er leiðin úr háskólagolfinu yfir í PGA mótaröðina greið eftir útskrift. Hann er í þannig stöðu núna að geta náð því. Þegar að hann kemst inn á PGA mótaröðina þá mun hann vera þar yfir lengri tíma vegna þess að hann framkvæmir allt það sem krefst ekki hreinna hæfileika á mjög háu gæðastigi. Það er stærsta hindrunin hjá mörgum hæfileikaríkum kylfingum. Hvort þeir geti hagað sínu lífi þannig að það sé betra en hjá öllum öðrum. Núna er Gunnlaugur Árni að gera það.“ Brot úr viðtalinu við Jake Amos, þjálfari Gunnlaugs Árna hjá LSU má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Opna bandaríska Golf Mest lesið UEFA logar í ljósi áforma Infantino: „Sál fótboltans ekki til sölu“ Fótbolti Gylfi ósáttur: „Ótrúleg ákvörðun hjá KSÍ“ Sport Kröfur umboðsmanns Salah valda vandræðum Fótbolti Besti handboltamaður heims fór í markið Handbolti Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Enski boltinn Stones sagður hafa náð samkomulagi við Inter Fótbolti Sölvi keyptur til KR Íslenski boltinn Sjáðu Ágúst Orra tryggja Breiðabliki sigur og viðhalda ótrúlegri tölfræði Íslenski boltinn „Af hverju er þessi leikvangur ekki troðfullur í hvert einasta skipti?“ Fótbolti „Ekki það sem við lögðum upp með“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Guðmundur Oddsson látinn „Ég ætla ekki að segja neitt sem ég má ekki segja“ Rory var „fastur í hlutlausum“ allt mótið og segist vera á leið í frí „Ég fann ekki fyrir neinu við púttið því allt skalf svo mikið“ Scheffler segir DeChambeau „klárlega ekki vera svindlara“ Fox sýndi stáltaugar og vann sitt fyrsta risamót Young flaug inn í toppbaráttuna og Scheffler skammt undan Aron og Guðrún með forystu fyrir lokahringinn McIlroy pirraður á athyglissjúkum DeChambeau Burns leiðir á Birkdale og líkur á sögulegum sigri Sá þriðji sem jafnar vallarmetið Púttin að leika Scheffler grátt DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti DeChambeau einu höggi frá toppsætinu eftir fugla á lokaholunum Íslendingar í stórum hlutverkum á The Open Tveir kylfingar jafna besta hringinn á risamóti Stuttu pútti frá besta hring sögunnar „Of mörg heimskuleg mistök“ Hafði aldrei komið til Evrópu en nú er hann efstur á Opna breska Vonar að hann fái að halda áfram að reykja „Er það ekki fullkominn dagur? Golf og fótbolti“ „Ég sef í bílnum ef ég þarf“ „Ég er svo lélegur í golfi“ Ragnhildur hlaut hálfa milljón í þriðja sæti í Englandi Gunnlaugur Árni íþróttakarl ársins í LSU Íslensku liðin hófu leik á Evrópumótinu í holukeppni Gunnlaugur Árni vann Arnold Palmer-bikarinn Tveir íslenskir kylfingar í efstu tíu sætunum Bjargaði fugli úr tjörn í miðjum golfhring Sjá meira