Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Aron Guðmundsson skrifar 12. júní 2026 09:30 Það verður ekki leiðinlegt fyrir Scottie Scheffler að vera í kringum Gunnlaug Árna. Vísir/Samsett Gunnlaugur Árni Sveinsson fær dýrmæta reynslu í aðdraganda síns fyrsta risamóts á golfferlinum. Hann mun taka æfingarhring með besta kylfingi heims um þessar mundir, Scottie Scheffler. Þjálfari Gunnlaugs hjá LSU segir hann tilbúinn fyrir stóra sviðið.
Gunnlaugur Árni varð á dögunum fyrsti íslenski kylfingurinn til þess að tryggja sér sæti á U.S. Open risamótinu í karlaflokki. Kylfingurinn hefur verið að taka gríðarlegum framförum í háskólagolfinu í LSU þar sem að Jake Amos er aðalþjálfari. Sá tók fyrst eftir Gunnlaugi þegar hann var sextán ára gamall. „Gunnlaugur Árni er með frábært hugarfar. Er þroskaðasti krakki sem ég hef á ævi minni hitt,“ segir Jake í samtali við Vísi. „Allt það sem hann hefur gert hingað til hefur gert hann kláran fyrir þetta tækifæri. Hann er með nálgun atvinnumanns að því hvernig hann hagar sínu lífi. Það nær stundum á þann stað að við þurfum að minna hann á að það er skemmtilegt að spila golf. Að hann þurfi að halda áfram að skemmta sér að því að spila golf. Hann er bara svo metnaðarfullur.“ Mun ekki koma honum úr jafnvægi Gunnlaugur heldur nú inn á svið þar sem að bestu og þekktustu kylfingar í heimi mæta til leiks ásamt honum. Það myndi enginn álasa honum fyrir að vera með stjörnur í augunum en Jake hefur engar áhyggjur af sínum manni. „Hann er heppinn með það að hér í LSU hefur hann verið í kringum frábæra kylfinga á borð við Sam Burns sem er einn af þeim bestu í heimi. Gunnlaugur Árni hefur verið mikið í kringum hann á þessu ári. Þá eru margir kylfingar af PGA mótaröðinni sem nýta sér aðstöðuna hjá okkur. Hann er því mun öruggari í þannig umhverfi.“ Sam Burns er í 29.sæti á heimslistanum og er reglulega gestur á svæði LSUVísir/Getty „Ég tel að hann muni ekki láta það koma sér úr jafnvægi að vera í kringum þessar stjörnur. Hann verður sér til sóma. Ég sagði það við hann í gær að láta sér ekki koma það á óvart ef einhverjir kylfingar á mótinu staldri við þegar að hann slær boltann. Hann er það góður.“ Gunnlaugur fær tækifæri til þess að venjast stóra sviðinu fyrir fyrsta keppnisdag á U.S. Open. „Hann mun spila æfingahring með Scottie Scheffler og Sam Burns einn æfingadaginn fyrir mótið. Það mun hjálpa honum við að slaka á og skilja hann er nógu góður til þess að vera þarna. Hann er tilbúinn í þetta. Ég er spenntur fyrir því að sjá hvernig hann mun standa sig.“ Tenging er á milli Gunnlaugs Árna og Scottie Scheffler í gegnum umboðsskrifstofuna Hambric Sports sem þeir eru báðir á mála hjá. Scheffler hefur lengi vel verið efsti maður heimslistans og er með fjóra sigra á risamótum á sínum ferli. Í tvígang hefur hann unnið Masters mótið, einu sinni PGA meistaramótið og Opna breska meistaramótið. Þrír æfingadagar verða fyrir U.S. Open frá mánudeginum i næstu viku til og með miðvikudeginum. Mótið fer fram á Shinnecock Hills Golf Club vellinum í Southampton í New York fylki. Fleiri brot úr viðtali Vísis við Jake Amos, þjálfara Gunnlaugs Árna hjá LSU munu birtast á Vísi fram að U.S. Open sem hefst á fimmtudaginn í næstu viku og verður sýnt í beinni útsendingu á Sýn Sport.
Opna bandaríska Mest lesið Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Finnur til með Arnari Handbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Íhugaði að hætta: „Ekki stóra markmiðið heldur hvað maður lærir á leiðinni“ Sport Elísabet tjáir sig: Grátlega nálægt draumnum í þrígang Fótbolti Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Fótbolti Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Evrópa hafði betur gegn Bandaríkjunum Horfðu á golfmót í körfubíl Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Enduðu tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Sjá meira