Almenningur ekki talinn eiga rétt á upplýsingum um ETS-sérlausn Kjartan Kjartansson skrifar 10. júní 2026 15:30 Ráðuneyti Jóhanns Páls Jóhannsson vildi ekki afhenda umsögn sem Umhverfis- og orkustofnun vann um reynsluna af sérlausn sem Ísland fékk fyrir flugrekendur frá ETS-viðskiptakerrfinu. Það gæti skaðað hagsmuni Íslands. Vísir/Vilhelm Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu var heimilt að neita Vísi um aðgang að umsögn um reynslu af sérlausn sem Ísland fékk fyrir flug í ETS-losunarkerfinu. Úrskurðarnefnd taldi að greininingin gæti veitt Evrópusambandinu innsýn í samningsmarkmið Íslands.
Íslensk stjórnvöld semja nú við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um einhvers konar framlengingu á sérlausn sem þau fengu fyrir flugfélög sem fljúga frá Íslandi frá hertum kröfum í ETS-viðskiptakerfinu með losunarheimildir. Sérlausnin, sem leyfir íslenskum stjórnvöldum að niðurgreiða losun flugfélaga, rennur út í árslok. Vísir óskaði í febrúar eftir umsögn sem Umhverfis- og orkustofnun vann með mati hennar á reynslunni af framkvæmd sérlausnarinnar síðasta árið fyrir starfshóp sem utanríkisráðuneytið skipaði. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hafnaði beiðninni. Taldi ráðuneytið umsögnina nátengda samskiptum við önnur ríki og þannig undanþegna upplýsingaskyldu stjórnvalda. Þá ákvörðun kærði Vísir til úrskurðarnefndar upplýsingamála. Nefndin staðfesti ákvörðun ráðuneytisins með úrskurði í dag. Nefndin féllst á rök ráðuneytisins um að afhending umsagnarinnar gæti veitt framkvæmdastjórn ESB innsýn í atriði sem íslensk stjórnvöld leggja áherslu á og að hún hefði skaðleg áhrif á samningsstöðu Íslands í viðræðum um mögulega framlengingu á sérlausninni. Sagði stefnuna ekki opinbera löngu eftir að ráðherra ræddi hana við RÚV Ráðuneytið hélt því fram að þegar það hafnaði Vísi um umsögnina hefðu stjórnvöld ekki verið búin að upplýsa að þau ynnu að tillögum til framkvæmdastjórnar ESB um hvað tæki við af sérlausninni. Málið væri því á svo viðkvæmu stigi að ekki væri hægt að upplýsa um að í umsögninni væru aðeins upplýsingar sem skiptu máli við mótun samningsmarkmiða. Beiðni Vísis var hafnað 27. febrúar, meira en fjórum mánuðum eftir að Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, sagði Ríkisútvarpinu að starfshópur stjórnvalda stefndi að því að fá framlengingu á undanþágu Íslands. Við gerum allt sem við getum. [...] Þetta skiptir máli fyrir íslenska hagsmuni og það skiptir gríðarlegu máli að fá þessar sérlausnir síðast. Jóhann Páll Jóhannsson við RÚV, 8. október 2025. Þá bar ráðuneytið því við að umsögn Umhverfis- og orkustofnunar um reynsluna af sérlausninni væri nátengd hagsmunagæslu íslenskra stjórnvalda gagnvart ESB. Efni umsagnarinnar hefði afar mikla þýðingu við mótun tillagna um það sem tæki við þegar núverandi sérlausn rynni sitt skeið. Ekki var tekið tillit til athugasemda Vísis um að stefna stjórnvalda um að sækjast eftir framlengingu á sérlausn hefði þegar verið opinber þegar óskað var eftir umsögninni. Vísir gerði athugasemdir við að ráðuneytið hefði ekki sýnt fram á hvernig greining innlendrar eftirlitsstofnunar á reynslunni af framkvæmd sérlausnarinnar fæli í sér upplýsingar sem Evrópusambandinu væru ókunnar og gætu raunverulega valdið tjóni í alþjóðlegum samskiptum stjórnvalda eða viðræðum. Umsögn um losunarkerfi ekki upplýsingar um losun mengandi efna Úrskurðarnefndin segir í staðfestingu sinni á höfnun ráðuneytisins að ljóst sé að í umsögninni komi fram sjónarmið og atriði sem „ætla megi“ að hafi þýðingu fyrir afstöðu Íslands gagnvart framkvæmdastjórn ESB og „kunni“ að verða horft til í viðræðum um hugsanlega framlengingu á sérlausninni. „Afhending þeirra gæti því að mati nefndarinnar veitt viðsemjendum Íslands innsýn í atriði sem íslensk stjórnvöld leggja áherslu á og haft skaðleg áhrif á samningsstöðu Íslands gagnvart framkvæmdastjórn Evrópusambandsins,“ segir í úrskurðinum. Taldi nefndin umsögnina þannig falla undir ákvæði upplýsingalaga um að takmarka megi rétt almennings á upplýsingum þegar almannahagsmunir krefjist og þær varði samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir. Einnig hafnaði nefndin rökum Vísis um að fjölmiðillinn ætti rétt á umsögninni, eða hluta hennar, á grundvelli ákvæðis upplýsingalaga um rétt almennings á upplýsingum um mengandi losun út í umhverfið. Umsögn Umhverfis- og orkustofnunar lyti að reynslu af framkvæmd sérlausnarinnar og greiningu á umgjörð hennar en hefði að mati nefndarinnar ekki að geyma upplýsingar um losandi mengun. Niðurgreiddu rekstur flugfélaga um 400 milljónir Íslensk stjórnvöld sömdu um tímabundna sérlausn fyrir flugrekendur sem fljúga til og frá Íslandi áður en ókeypis losunarheimildir sem evrópsk flugfélög hafa fengið úr ETS-kerfinu voru fasaðar endanlega út á þessu ári. Nú þurfa flugfélög sem fljúga innan Evrópu að kaupa allar sínar losunarheimildir sjálf. Icelandair og ítalskt leiguflugfélag fengu úthlutað losunarheimildir frá íslenska ríkinu á grundvelli sérlausnarinnar vegna losunar síðasta árs í janúar. Icelandair fékk langstærstan hluta heimildanna. Ríkissjóður varð af rúmlega fjögur hundruð milljón krónum sem hann hefði getað haft í tekjur af því að selja heimildirnar á markaði. Búist er við því að kostnaður íslenska ríkisins af sérlausninni verði enn hærri á þessu ári. Gert hefur verið ráð fyrir tekjutap ríkisins vegna sérlausnarinnar geti numið allt að þremur milljörðum króna.
Evrópusambandið Flug Loftslagsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Fjölmiðlar Tjáningarfrelsi ETS-viðskiptakerfið með losunarheimildir Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Fleiri fréttir Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Sjá meira