Tók fjögur ár að slá föstu að samræði við barn væri nauðgun Árni Sæberg skrifar 5. júní 2026 13:02 Drífa Snædal er talskona Stígamóta. Vísir/Anton Brink Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu í gær að karlmaður á þrítugsaldri hefði gerst sekur um nauðgun með því að hafa samræði við þrettán ára stúlku. Í héraði var hann sýknaður á þeim forsendum að stúlkan hefði veitt samþykki. Talskona Stígamóta gagnrýnir að barnið hafi ekki fengið niðurstöðu í mál sitt fyrr en rúmum fjórum árum eftir nauðgunina.
Með dómi Héraðsdóms Reykjaness árið 2023 var maðurinn dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir brot á ákvæði hegningarlaga sem bannar kynlíf með börnum undir fimmtán ára. Hann var aftur á móti sýknaður af ákæru fyrir að hafa nauðgað stúlkunni þar sem dómurinn taldi hann ekki hafa beitt barnið nauðung. Sá dómur var harðlega gagnrýndur á sínum tíma. Þurftu að meta hvort barnið hafi verið nægilega þroskað Landsréttur dæmdi manninn í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun í febrúar í fyrra en Hæstiréttur ómerkti þann dóm og gerði Landsrétti að meta hvort stúlkan hefði verið nægilega þroskuð til að veita samþykki. Í gær komst Landsréttur að þeirri niðurstöðu að svo hefði ekki verið og staðfesti fyrri dóm um þriggja og hálfs árs fangelsi. Réttur dómur en kveðinn upp of seint Drífa Snædal, talskona Stígamóta, fagnar dóminum en gagnrýnir hversu langan tíma tók að komast að réttri niðurstöðu. „Ég tel þetta vera réttan dóm. Þarna er náttúrulega verið að tala um þrettán ára barn og það er ekki hægt að líta svo á að þrettán ára barn geti veitt samþykki. Þannig að mér finnst þetta rökrétt að þarna sé sakfellt fyrir nauðgun. Síðan er hins vegar annað mál hvað þetta hefur tekið óskaplega langan tíma í dómskerfinu. Nauðgunin á sér stað í febrúar 2022. Það eru rúm fjögur ár síðan og það tekur alveg ofboðslega á brotaþola þessi tímalengd og einhvern veginn að fá ekki lok mála innan skynsamlegra tímamarka. Þetta er einstaklega langur tími og ég ætla bara rétt að vona brotaþolans vegna að þessu máli sé þá lokið núna.“ Gegn réttarvitund almennings Þá segir hún að upphaflegur dómur Héraðsdóms Reykjaness hafi verið skrýtinn og í andstöðu við réttarvitund almennings. „Það voru töluverð viðbrögð við þeim dómi og það var alveg augljóst að þetta var ekki í samræmi við réttarvitund almennings, sá dómur. Þannig að ég er ánægð með það að Landsréttur hafi gefið í og ákveðið að dæma fyrir nauðgun. Það var að eina rétta.“ Meðal þeirra sem gagnrýndu dóm héraðsdóms var Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari. „Eins og við leggjum þetta upp þá geta börn á þessum aldri ekki veitt samþykki og þegar um er að ræða svona mikinn aldursmun þá geti það ekki talist gilt samþykki. Við erum að byggja á því að þetta sé ólögmæt nauðung í ljósi yfirburðarstöðu,“ sagði hún í samtali við Vísi á sínum tíma. Á ekki að vera spurning Sem áður segir ógilti Hæstiréttur fyrri dóm Landsréttar á þeim grundvelli að mat á því hvort stúlkan hefði verið nægilega þroskuð til að veita samþykki hefði ekki farið fram. Drífa furðar sig á því að það hafi verið talið skipta máli. „Í mínum huga er þetta ekki spurning. Þarna er náttúrulega gríðarlegt valdaójafnvægi. Fullorðið fólk á að hafa þroska sem börn hafa ekki. Við erum með lög í landinu um að ef þú veitir ekki samþykki fyrir kynferðislegum athöfnum, þá er það nauðgun og það er engin leið að líta svo á að þrettán ára barn geti veitt samþykki eða hafi þroska til þess. Þá skiptir ekki endilega máli hversu þroskað barnið telst vera. Þrettán ára er barn og þrettán ára getur ekki veitt samþykki.“
Kynferðisofbeldi Dómstólar Dómsmál Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent Fleiri fréttir Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Sjá meira