Hættir halal-slátrun eftir hringingar og haturspósta Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 4. júní 2026 11:14 Steinþór Skúlason forstjóri SS segir aukna sölu innanlands og neikvæðni í kringum halal-slátrun hafa orðið til þess að henni hafi verið hætt. Forstjóri SS - Sláturfélags Suðurlands segir minni framleiðslu og meiri eftirspurn innanlands vera helstu ástæðu þess að tekin hafi verið ákvörðun um að hætta svokallaðri halal-slátrun. Sláturfélaginu hafi auk þess borist hringingar og haturspóstar vegna aðferðarinnar vegna misskilnings um aðferðina.
Morgunblaðið greindi frá því í dag að SS hyggst hætta halal-slátrunum á lömbum. Steinþór Skúlason forstjóri SS segir í samtali við Vísi að aðferðin hafi haft takmarkaðar breytingar í för með sér frá fyrri aðferð en þeim mun neikvæðara umtal, sem byggist annars vegar á áhyggjum af dýravelferð og hins vegar á andúð í garð múslíma. „Við höfum fengið bæði hringingar og haturspósta og ég held það sé tvíþætt, stór hluti hefur annars vegar áhyggjur af því að það sé verið að fara illa með dýrin, auðvitað skilur maður það þó það sé ekki rétt. Síðan eru einhverjir, ég veit ekki hve stór hluti það er, sem hefur áhyggjur af því að við séum að lúffa fyrir múslímum, að breyta okkar venjum fyrir þá.“ Steinþór tekur fram að sama hvernig aðferð sé notuð við aflífun dýranna sé íslenskum reglum ávallt fylgt. Samkvæmt þeim beri að tryggja að sláturdýr séu svipt meðvitund til þess að þau finni ekki fyrir sársauka. Eini munurinn á aðferðinni hafi verið sá að múslími hafi starfað við aflífunina og sóst hafi verið eftir sérstakri halal-vottun frá Múslímafélaginu. „Og þá höfum við getað fengið þetta á fimmtán prósent hærra verði erlendis. Þetta hefur enga þýðingu hérna heima, einhver sem yrði vitni að þessu myndi ekki sjá neinn mun. Við erum ekki í neinni pólitík, við höfum bara verið að spá í okkar vörum og verðum. Auðvitað skilur maður tilfinningar fólks, við tökum enga afstöðu en nú hefur útflutningur minnkað svo mikið, þetta orðið kostnaður og svo er það þessi neikvæðni.“ Hann rifjar upp að það hafi verið árið 2009 sem SS menn hafi fyrst hugað að þessari slátrunaraðferð. Þá hafi sendinefnd heimsótt landið frá Kúrdistan og þá mikið rætt um að auka viðskipti á milli landanna, meðal annars með lambakjöt. Þá hafi SS hugað að halal-vottun í fyrsta sinn en Steinþór segir sláturfélagið þá þegar hafa farið að fá neikvæða tölvupósta vegna málsins. „Og okkur send skeyti um það að ef við ætluðum að gera þetta þá myndu þeir ekki versla við SS. Við sáum það að þetta væri tapað spil, þannig að við hættum þessu þá. Í mörg ár á eftir gekk svo sú draugasaga að við værum ennþá að slátra halal og við fengum ennþá skítapósta. Svo var magnað að þegar við ákváðum að hætta þá fengum við aðra haturspósta um að við værum að lúffa fyrir hatri, þannig það var sama hvað við gerðum, við vorum alltaf búin að tapa.“ Síðan hafi tímarnir breyst og tækifæri á erlendum mörkuðum fyrir slíkt kjöt opnast aftur. Nú séu uppi aðrar aðstæður og aukin eftirspurn á Íslandi. „Salan aukist hérna heima og framleiðsla minnkað á sama tíma, sem þýðir að mismunurinn sem við höfum til að flytja út, hann hefur snarminnkað.“
Matvælaframleiðsla Trúmál Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Erlent Fleiri fréttir Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Sjá meira