Fékk nýjan samning en Ferrari gefur ekki upp árafjöldann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júní 2026 12:31 Mónakómaðurinn Charles Leclerc keyrir áfram fyrir Ferrari næstu tímabil. Getty/Mark Sutton Formúlu 1-stjarnan Charles Leclerc heldur áfram næstu árin að keyra fyrir Ferrari-liðið í heimsmeistarakeppni Formúlu 1 á komandi árum. Hann hefur skrifað undir nýjan samning fyrir kappaksturinn í Mónakó þar sem hann er á heimavelli.
Ferrari tilkynnti um samninginn á miðvikudag. Í yfirlýsingunni segir að Leclerc muni halda áfram að keppa undir merkjum liðsins „næstu keppnistímabil“. BREAKING: Ferrari announce a new multi-year renewal with Charles Leclerc#F1 pic.twitter.com/5ef0Bl8eSQ— Formula 1 (@F1) June 3, 2026 Ekkert er minnst á nákvæma lengd samningsins. Leclerc hefur verið hluti af Ferrari-kerfinu í mörg ár. Undanfarin keppnistímabil hefur hann orðið einn af þekktustu ökumönnum Formúlu 1. „Ég gæti ekki verið ánægðari með að halda þessu ferðalagi áfram með Ferrari. Þetta lið hefur alltaf verið svo miklu meira en bara lið fyrir mig. Þetta er liðið sem ég hef elskað og dreymt um að vera hluti af síðan ég var barn, og eftir öll þessi ár er það orðið mín önnur fjölskylda,“ sagði Mónakómaðurinn. BREAKING: Charles Leclerc has signed a new contract at Ferrari "for the coming seasons" 🚨 pic.twitter.com/CzLA0hR6nP— Sky Sports News (@SkySportsNews) June 3, 2026 Charles Leclerc er í þriðja sæti í keppni ökumanna eftir fimm keppnir. Hann hefur tvisvar komist á verðlaunapall, þar sem hann endaði þriðji í bæði skiptin, og hefur auk þess tvisvar endað í fjórða sæti. Hann er 75 stig, þrettán stigum á eftir George Russell í öðru sæti en 56 stigum á eftir Kim Antonelli sem er í forystu. Hinn 28 ára gamli Leclerc hefur unnið 8 keppnir á ferlinum og 52 sinnum komist á verðlaunapall. Hann varð í öðru sæti í keppni ökumanna 2002 og í þriðja sæti 2024.
Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Fleiri fréttir Verða fleiri framúrakstrar í Mónakó? Fékk nýjan samning en Ferrari gefur ekki upp árafjöldann Þykja Alpine liðið vera of dýrt Tískuhús blandar sér í Formúlu 1 Gætu þurft að stíga inn í eftir harða baráttu liðsfélaganna Sá fyrsti í sögu Formúlu 1 Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu George Russell og Lando Norris úr leik í Kanada Russell á ráspól í Kanada Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Mercedes ökumennirnir halda áfram að berjast Max Verstappen rétt missti af sigri Nítján ára í hóp með Schumacher og Senna Antonelli hélt uppteknum hætti Formúlunni flýtt vegna storms Antonelli fékk færri tilraunir en tók ráspólinn McLaren með bestu sprettina í Miami Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Leclerc sneggstur á æfingum Verstappen fámáll um framtíð sína Sjá meira