Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Árni Sæberg skrifar 2. júní 2026 16:58 Halla Bergþóra Björnsdóttir er ríkislögreglustjóri. Vísir/Bjarni Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hefur verið auglýst laust til umsóknar. Halla Bergþóra Björnsdóttir, sem sinnti embættinu, tók við embætti ríkislögreglustjóra þann 20. apríl.
Í tilkynningu þess efnis á vef Stjórnarráðs Íslands segir að leitað sé að öflugum, framsýnum og umbótadrifnum leiðtoga sem hafi sterka hæfni til að leiða fjölbreyttan hóp starfsfólks í gegnum þróun og umbætur, skapa traust og samstöðu og stuðla að faglegri og skilvirkri löggæslu. Dómsmálaráðherra hafi kynnt að fyrirhugaðar séu breytingar á skipulagi lögreglu. Áform séu um að fækka lögregluembættum úr níu í fjögur til fimm og mynda þannig stærri og öflugri embætti um land allt. Í þessum áformum felist að sameining lögregluembætta á suðvesturhorni landsins verði skoðuð sérstaklega. „Framundan eru því breytingar á skipulagi löggæslu sem kalla á markvissa breytingastjórnun, árangursmiðaða nálgun og getu til að leiða starfsfólk í gegnum umbreytingar. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu mun gegna stóru hlutverki við þessar breytingar.“ Stýrir fjórum lögreglustöðvum Þá segir að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu fari með stjórn lögregluliðs í sínu umdæmi. Lögreglustöðvar innan umdæmisins séu fjórar talsins. Hlutverk lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu sé að annast daglega stjórn og rekstur lögreglunnar í umdæminu og beri hann ábyrgð á framkvæmd lögreglustarfa innan þess. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu eigi sæti í lögregluráði, sem hafi það hlutverk að efla samráð á meðal lögreglustjóra og samhæfa störf lögreglu. Umsækjendur um embættið skuli fullnægja skilyrðum lögreglulaga. Aðrar hæfniskröfur séu eftirfarandi: Öflug leiðtogahæfni og farsæl reynsla af stjórnun er skilyrði. Þekking, reynsla og árangur á sviði rekstrar er kostur. Þekking og reynsla af umbóta- og breytingastarfi er kostur. Þekking á verkefnum lögreglu er kostur. Rík samskipta- og samstarfshæfni. Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun. Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti. Dómsmálaráðherra skipi í embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu til fimm ára í senn samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Umsóknarfrestur sé til og með 26. júní og senda skuli umsókn á starf@dmr.is. Nöfn allra umsækjenda verði birt á vef ráðuneytisins að liðnum umsóknarfresti.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Lögreglan Reykjavík Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira