Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 29. maí 2026 07:29 Eldhnötturinn sást víða. Vísir/AP Eldflaug fyrirtækisins Blue Origin í eigu Jeff Bezos sprakk í loft upp í tilraunaskoti í Flórída í gærkvöldi. Engum starfsmanni var meint af en gríðarstór eldhnötturinn sást víða.
Á myndböndum má sjá hvernig eldhnöttur gleypti skotpallinn í Kennedy-geimferðarmiðstöðinni nokkrum sekúndum eftir að svokölluð „heitprófun“ hófst í gærkvöldi klukkan 21:00 að staðartíma. Samkvæmt frétt Guardian af atvikinu sást sprengingin víða, meðal annars í borginni Fort Pierce í 185 kílómetra fjarlægð sunnan af skotpallinum. Um er að ræða þá tegund eldflaugar sem Blue Origin ætlar að nota til að koma mönnum til tunglsins á vegum Nasa og byggja þar tunglstöð. Bezos sagði í færslu á samfélagsmiðlum að allir starfsmenn fyrirtækisins væru óhultir eftir atvikið en sagði ljóst að um mjög erfiðan dag væri að ræða. Ekki er lengra síðan en á þriðjudag að Nasa tilkynnti að gerður hefði verið samningur við Blue Origin um að annast fyrstu þrjú geimskotin á þessu ári sem ætlað er til undirbúnings tunglstöðvar. Fyrirtækið á þannig í samkeppni við SpaceX fyrirtæki Elon Musk um geimferð árið 2028 sem ætlað er að koma mönnum aftur til tungslins. Þá hefur Jared Isaacman stjórnandi Nasa sagt á samfélagsmiðlinum X að sprengingin í Flórída í gærkvöldi verði rannsökuð að fullu. Blue Origin hefur sagt um frávik að ræða. „Geimferðir eru vægðarlausar og það er gríðarlega erfitt að þróa nýja burðargetu fyrir þungar eldflaugar. Við munum vinna með samstarfsaðilum okkar að ítarlegri rannsókn á þessu fráviki, meta áhrif á verkefnin til skamms tíma og hefja eldflaugaskot að nýju.Við munum veita upplýsingar um öll áhrif á Artemis- og tunglstöðvaráætlanirnar um leið og þær verða tiltækar.“
Geimurinn Tunglið Bandaríkin Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Sjá meira