Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Sindri Sverrisson skrifar 22. maí 2026 11:05 Alfreð Gíslason verður áfram þjálfari þýska landsliðsins næstu tvö árin. Getty/Federico Gambarini Alfreð Gíslason hefur framlengt samning sinn við þýska handknattleikssambandið og mun stýra liðinu áfram næstu tvö árin. Þetta tilkynnti sambandið í dag.
Alfreð, sem er 66 ára gamall, var með samning sem runnið hefði út eftir heimsmeistaramótið sem fram fer í Þýskalandi í janúar á næsta ári. Óvissa ríkti um framhaldið þó að Alfreð væri fyrir nokkru búinn að lýsa yfir áhuga á að halda áfram með þýska liðið sem hann stýrði til silfurverðlauna á EM í janúar sem og á síðustu Ólympíuleikum. Nú hefur Alfreð hins vegar verið treyst fyrir næstu stórmótum; HM í janúar, EM 2028 og svo Ólympíuleikunum í Los Angeles 2028 ef Þýskaland kemst þangað. View this post on Instagram A post shared by Deutscher Handballbund (@dhb_teams) „Áreiðanlegur maður í alla staði“ „Alfreð er ekki aðeins áhrifamikill þjálfari, heldur einnig áreiðanlegur maður í alla staði. Það endurspeglast í samskiptum síðustu vikna, sem hafa leitt til þessa árangurs með gagnkvæmu trausti og mikilli yfirvegun,“ segir Ingo Meckes, íþróttastjóri þýska handknattleikssambandsins, í fréttatilkynningu. „Það er rökrétt að Alfreð Gíslason verði áfram landsliðsþjálfari okkar og beri þar með ábyrgð á öllu Ólympíutímabilinu. Hann hefur endurnýjað landsliðið okkar á undanförnum árum með fjölmörgum leikmönnum fæddum árið 2000 og síðar og þannig byggt það upp til framtíðar, jafnvel út fyrir HM 2027. Með Ólympíuleikunum 2028 getur Alfreð fullkomnað verk sitt fyrir þýskan handbolta,“ sagði Meckes. Þakklátur fyrir traustið eftir að hafa endurnýjað liðið Í tilkynningunni er bent á að frá því að Alfreð valdi sinn fyrsta landsliðshóp, í mars 2020, voru aðeins markvörðurinn Andreas Wolff, línumennirnir Johannes Golla og Jannik Kohlbacher, auk örvhentu skyttanna Franz Semper og Juri Knorr, í hópnum sem vann silfur á EM í janúar. Allir aðrir festu sig í sessi í landsliðinu undir stjórn Íslendingsins. „Að vera landsliðsþjálfari þýska handboltalandsliðsins er meira en bara starf – því finn ég fyrir á hverjum heimaleik, eins og síðast með 19.750 áhorfendum í Köln,“ segir Alfreð. „Það var mitt verkefni að endurnýja landsliðið. Það hefur okkur tekist. Ég er þakklátur fyrir traustið að fá að halda þessu starfi áfram til 2028. Og ég er sannfærður um að við getum tekið síðasta skrefið með leikmönnum okkar. Silfurverðlaunin á Ólympíuleikunum 2024 og Evrópumeistaramótinu 2026 eru okkur öllum hvatning. Sagan okkar er langt frá því að vera öll.“ Lýsir Alfreð sem kletti í sjónum Andreas Michelmann, forseti þýska handknattleikssambandsins, segir: „Ég gleðst fyrir hönd þýsks handbolta, okkar og Alfreðs að við höfum náð þessari samningsframlengingu. Auk handboltahæfileika sinna er og verður Alfreð kletturinn í hafsjó. Stöðugleiki hans veitir okkur æðruleysi og þar með aukið öryggi á þessum sífellt órólegri tímum. Ég þakka íþróttastjóra okkar, Ingo Meckes, fyrir skýrt, vel skipulagt og ítarlegt ferli sem við lukum á réttum tíma fyrir sumarið, eins og áætlað var.“
Handbolti HM karla í handbolta 2027 Ólympíuleikar 2028 í Los Angeles Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Mexíkó – Suður-Afríka | HM fer af stað í Mexíkóborg Fótbolti Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira