„Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Sindri Sverrisson skrifar 22. maí 2026 08:33 Josh Hart átti stórleik í sigri New York Knicks í gærkvöld. Getty/Sarah Stier Josh Hart fór fyrir liði New York Knicks í gærkvöld þegar það komst í 2-0 í einvíginu við Cleveland Cavaliers í úrslitum austurdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta. Hann kom með áhugaverða líkingu eftir leikinn.
Hart átti sinn þátt í magnaðri rispu Knicks sem skoruðu 18 stig í röð, eftir að staðan hafði verið jöfn 53-53, og lögðu þannig grunninn að 109-93 sigri. Þeir höfðu áður unnið ótrúlegan endurkomusigur í fyrsta leik og eru því komnir í góða stöðu í einvíginu. JOSH HART SHOWED OUT IN GAME 2!26 PTS (postseason career-high)4 REB7 AST2 STL5 3PMKnicks win Game 2 to take a 2-0 series lead in the East Finals 🍿 pic.twitter.com/Bvku6RutNV— NBA (@NBA) May 22, 2026 Hart skoraði 26 stig, þar á meðal fimm þrista, og hefur aldrei skorað fleiri stig í einum leik í úrslitakeppni. Hann sat fyrir svörum ásamt Karl-Anthony Towns á blaðamannafundi eftir leik og var spurður út í tölfræði úr leiknum en sagðist ekki mikið fyrir tölfræðigreiningu: „Hún er eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann. Maður getur stutt sig við hann, en hann kemur manni ekki heim,“ sagði Hart. Josh Hart hates analytics:"They're lamp posts to a drunk person. You can lean on them, but it won't get you home"KAT couldn't believe what he said 🤣🤣🤣 pic.twitter.com/8FDi81GNDC— Oh No He Didn't (@ohnohedidnt24) May 22, 2026 Hann uppskar hlátur viðstaddra og meðal annars frá Towns sem hafði greinilega gaman af ummælunum. Towns skoraði 18 stig, Mikal Bridges 19 og Jalen Brunson einnig 19 auk þess að gefa 14 stoðsendingar. Knicks eru núna tveimur sigrum frá því að komast í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar í fyrsta sinn á þessari öld, eða frá árinu 1999. Þeir hafa ekki orðið meistarar síðan árið 1973. Donovan Mitchell skoraði 26 stig fyrir Cavaliers og James Harden 18. Liðið lenti einnig 2-0 undir gegn Detroit Pistons í síðustu umferð en vann það einvígi á endanum, 4-3.
NBA Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu Körfubolti Fleiri fréttir Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Sjá meira