Funduðu með dómurum: „LeBron fær verstu meðferð sem ég hef séð“ Sindri Sverrisson skrifar 8. maí 2026 08:30 LeBron James og félagar eru lentir 2-0 undir í einvíginu við Oklahoma City Thunder. Getty/Joshua Gateley LA Lakers eru komnir í erfiða stöðu í einvígi sínu við meistara Oklahoma City Thunder, í undanúrslitum vesturdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta, og eru hundóánægðir með dómgæsluna.
Oklahoma-liðið fagnaði 125-107 sigri í nótt og komst í 2-0 í einvíginu, og virðist hafa gott tak á Lakers. Detroit Pistons komust sömuleiðis í 2-0 gegn Cleveland Cavaliers með 107-97 sigri. Eftir leikinn í nótt hópuðust leikmenn Lakers að dómurunum og Austin Reaves virtist mikið niðri fyrir þegar hann talaði máli þeirra. Austin Reaves and the Lakers just had a meeting with the refs after the game to share their frustration with them. pic.twitter.com/exHIVkrese— Legion Hoops (@LegionHoops) May 8, 2026 JJ Redick, þjálfari Lakers, tjáði sig svo um dómgæsluna á blaðamannafundi eftir leik. „Ég sagði í kaldhæðni um daginn að þeir væru liðið sem truflaði mest án þess að brjóta,“ sagði Redick. „Ég meina, þeir eru með nokkra leikmenn sem brjóta í hverri einustu sókn. Það er nógu erfitt að spila á móti þeim. Það er nógu erfitt að spila á móti þeim, það verður að vera hægt að dæma á þá ef þeir brjóta, og þeir brjóta,“ sagði Redick. Redick fékk tæknivillu í fyrsta leikhluta fyrir að öskra á dómarann Ben Taylor og hann var sérstaklega óánægður með þá meðhöndlun sem LeBron James hefur fengið hjá dórmurunum. James fékk að meðaltali 5,3 vítaskot í leik í deildarkeppninni en hefur aðeins fengið fimm vítaskot samanlagt í leikjunum tveimur við Oklahoma. James laminn sundur og saman „LeBron fær verstu meðferð hjá dómurum af öllum stjörnuleikmönnum sem ég hef séð,“ sagði Redick. „Ég meina, ég er búinn að vera með honum í tvö ár núna. Minni leikmenn, þar sem þeir geta verið með leikaraskap, fá yfirleitt fleiri villur dæmdar á sig en stærri leikmenn sem eru byggðir eins og LeBron eiga erfiðara með það. Það er barið á honum. Það var barið á honum aftur í kvöld, mikið,“ sagði Redick og hélt áfram: „Og það er ekkert nýtt. Það er ekki bundið við þetta dómarateymi eða þessa einvígisseríu. Það er brotið mikið á honum og það er ekki [dæmt]. Þessi maður er sleginn í höfuðið oftar en nokkur annar leikmaður sem ég hef séð þegar hann keyrir að körfunni, og það er sjaldan dæmt.“ Chet Holmgren og Shai Gilgeous-Alexander skoruðu 22 stig hvor fyrir Thunder en James var með 23 fyrir Lakers.
NBA Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Fleiri fréttir Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Sjá meira