Titillinn undir í oddaleik: „Eitthvað magnað sem ræður úrslitum í kvöld“ Aron Guðmundsson skrifar 7. maí 2026 16:17 Frá leik fjögur í einvígi Vals og FH sem var gjörsamlega sturlaður handboltaleikur Vísir/Anton Brink Úrslitin ráðast í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn í Olís deild karla í handbolta í kvöld þegar að Valur og FH mætast í oddaleik í úrslitaeinvígi deildarinnar. Sérfræðingur Sýnar á von á hádramatík í leik kvöldsins eins og var raunin í síðasta leik liðanna. Ungstirni gætu leikið lykilhlutverk.
Magnaður sigur FH í ótrúlegum handboltaleik sem var tvíframlengdur og réðist á lokasekúndum seinni framlengingarinnar í fjórða leik einvígisins gegn Val í Kaplakrika á dögunum knúði fram oddaleik kvöldsins og setur tóninn fyrir úrslitastund á Hlíðarenda. „Ég vonast eftir því að þetta verði með svipuðum hætti og síðast. Ég held að þetta geti alveg farið í einhverjar framlengingar, dramatík og einhver VAR móment sem gætu jafnvel ráðið úrslitum,“ segir Einar Jónsson handboltaþjálfari og sérfræðingur í samtali við Vísi. „Fram að síðasta leik voru þetta fremur sannfærandi sigrar á báða bóga í fyrstu þremur leikjunum. Svo fengum við þessa alvöru bombu í leik fjögur. Það verður eitthvað magnað sem ég held að ráði úrslitum í kvöld.“ Heimavöllurinn ofmetinn? Liðin hafa varið heimavelli sína í úrslitaeinvíginu. En vinnur það með Val í kvöld á Hlíðarenda? „Miðað við hvernig þetta hefur verið þá hefur heimavöllurinn alveg gríðarlegt vægi. Ég geri náttúrulega ráð fyrir því að Valsmenn verði í meirihluta í stúkunni. Auðvitað er hægt að segja að þeir hafi eitthvað smá forskot en við erum nú bara á Íslandi. Heimavöllurinn kannski telur ekki eins mikið og við sjáum út í heimi að mínu mati. Ég held að bæði þjálfarar og leikmenn nái að loka á þetta. „Ballen er rund“ eins og við segjum, völlurinn 20x40. Fókusinn verður þar.“ Stemningin á leikjum liðanna til þessa hefur verið frábærVísir/Anton Brink Engir aukaleikarar Bæði lið hafa yfir að skipa ungum leikmönnum sem hafa skarað fram úr í vetur. Hinn átján ára gamli Ómar Darri Sigurgeirsson í liði FH fór á kostum í síðasta leik og skoraði þrettán mörk, liðsfélagi hans Garðar Ingi Sindrason sem gengur til liðs við Gummersbach í Þýskalandi eftir tímabilið er alltaf hættulegur og sama má segja um Gunnar Róbertsson hjá Val. Þeir gætu ráðið úrslitum í kvöld. Ómar Darri hefur verið frábær á tímabilinu. Hann skoraði ellefu mörk í síðasta leik gegn ValVísir/Anton Brink „Já alveg klárlega. Þetta er það fallega við þetta einvígi og hefur svo sem verið sagan í vetur líka. Bæði þessi lið hafa stráka sem hafa heldur betur tekið miklum framförum í vetur eftir því sem hefur liðið á tímabilið. Þetta eru engir aukaleikarar. Þeir eru ekki að taka brauðmola frá einhverjum öðrum. Þetta eru bara mennirnir sem eru að leiða liðin sín. Gunnar Róbertsson er afar öflugur ungur leikmaður sem gæti spilað stóra rullu í leið liðsins á titlinum í kvöldVísir/Anton Brink Það er ótrúlega gaman að sjá svona unga stráka orðna svona ofboðslega þroskaða og orðna hrikalega góða í handbolta. Ég á von á því já. Ég held að þessir strákar sem við höfum talað um hérna, að einhver þeirra geti stolið sviðsljósinu og orðið leikbreytir fyrir annað hvort liðið. Já ég á hundrað prósent von á því að þessir strákar eigi eftir að halda áfram að skila sínu í þessu einvígi. Þeir hafa verið frábærir.“ Tvö bestu lið landsins í vetur að mætast í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn. „Það lið sem vinnur í kvöld á það bara hundrað prósent verðskuldað og það lið sem tapar verðskuldar það reyndar líka að vinna þetta. Það er bara eitt lið sem stendur uppi sem sigurvegari. Það er ómögulegt að spá um það en mín tilfinning er að Valur vinni þetta í framlengingu í einhverju hádrama.
Olís-deild karla Valur FH Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Íslenski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Íslenski boltinn Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Kane lendir um helgina Körfubolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Fleiri fréttir Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Sjá meira