Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Smári Jökull Jónsson skrifar 30. apríl 2026 13:31 Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, heldur ávarp á baráttufundi á Ingólfstorgi á morgun í tilefni af baráttudegi verkalýðsins. Vísir/Anton Brink Baráttudagur verkalýðsins verður haldinn hátíðlegur á morgun með kröfugöngum og baráttufundum víða um land. Formaður VR segir skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks standa yfir víða um heim og tilraunir til slíks verið gerðar hér á landi.
Baráttudagur verkalýðsins er á morgun og fara kröfugöngur meðal annars af stað í Reykjavík, Akranesi, Ísafirði og Akureyri eftir hádegið og þá verða haldnir samstöðutónleikar í Hafnarfirði auk baráttufunda og annarrar dagskrár víðsvegar um landið. Kröfugangan í Reykjavík hefst á Skólavörðuholti klukkan eitt á morgun þar sem Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur spila en gengið er niður á Ingólfstorg. Þar verður útifundur undir stjórn Felix Bergssonar og Halla Gunnarsdóttir formaður VR mun ávarpa fundinn. Halla segir styrk launafólks felast í fjöldanum. „Við erum mörg og við eigum ofboðslega mikla sameiginlega hagsmuni. Það er auðvitað alltaf hætt við því í svona stórri hreyfingu að fólk fari að einblína á það sem skilur okkur að. En það er svo ofboðslega mikið sem sameinar og 1. maí er dagurinn þar sem við höldum það í heiðri og minnum okkur á að réttindin sem við höfum í dag, að fyrir þeim var barist,“ sagði Halla í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. „Mjög mikið vegið að launafólki“ Áskoranir verkalýðshreyfingarinnar núna snúi að því að kjarasamningar séu líklegir til að losna í haust þar sem væntingar um verðbólgu og lækkun stýrivaxta hafi brostið. „Á 1. maí þá erum við að hugsa um okkur sjálf sem hluta af hinni alþjóðlegu verkalýðshreyfingu og hún er náttúrulega einhver merkasta hreyfing í heimi. Hún er risastór og fólk náttúrulega safnast saman um allan heim. Þetta er auðvitað sú hreyfing sem hefur breytt lífsgæðum og veruleika fólks hvað mest,“ segir Halla. Gögn sýni að réttindaniðurbrot hafi leitt til þess að þeir ríku hafi orðið ríkari og þeim fjölgað sem lifi við skort. „Það er mjög mikið vegið að launafólki og það er alþjóðleg þróun. Það hefur staðið yfir skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks víða um heim. Og það eru alls konar tilraunir til þess hérna.“ „Allur gangur á hversu vel verkalýðshreyfingunni tekst að iðka samstöðuna“ Því sé samstaðan mikilvæg, að verkafólk á opinberum og almennum markaði standi saman. „Það er náttúrulega verið að vega að réttindum okkar allra núna í gegnum skerðingar á atvinnuleysistryggingum. Við sjáum alveg merki þessa hérna og erum að bregðast við því og reisa varnir.“ Metur þú samstöðuna mikla á milli verkalýðshreyfinganna, eða innan verkalýðshreyfingarinnar? „Það er auðvitað allur gangur á því hversu vel verkalýðshreyfingunni tekst að iðka samstöðuna. En dagurinn á morgun. 1. maí, er dagur samstöðunnar og það er bara ábyrgð okkar allra að rísa undir því og koma fram sameinuð og einblína á það sem sameinar okkur en ekki það sem sundrar“
Verkalýðsdagurinn Vinnumarkaður Stéttarfélög Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira