Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess Árni Sæberg skrifar 28. apríl 2026 11:17 Heiða Björg, Daði Már og Ragnar Þór kynntu húsnæðispakkann á blaðamannafundi í dag. Vísir/Birgir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, kynntu í dag stórfellda íbúðauppbyggingu á ríkislóðum og í ríkiseignum í Reykjavík. Byggðar verða 1.200 til 1.400 nýjar íbúðir á næstu árum á lóðum ríkisins og í húsnæði í eigu ríkisins, sem breytt verður í íbúðir.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að íbúðirnar verði á eftirfarandi stöðum og áætlaður fjöldi þeirra sé: Borgartún: 220 íbúðir Grensásvegur: 90 íbúðir Efri hluta Laugavegar: 100 íbúðir Laugarnesvegur: 300 íbúðir Seljavegur: 90 íbúðir Á landi austan Korpúlfsstaða, á mörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar: Á bilinu 400 til 600 íbúðir Alls séu íbúðirnar því um 1.200 til 1.400 talsins. Verkefnin séu mislangt á veg komin og íbúðum geti fjölgað enn frekar eftir því sem líður á skipulagsferlið. Kynningu ráðherranna og borgarstjóra má sjá í heild sinni hér: Hér má sjá glærusýningu sem sýnd var á fundinum en í henni má sjá ríkislóðirnar og húsnæðið sem um ræðir. Hér má sjá Vegagerðarreitinn svokallaða í Borgartúni.Stjórnarráðið Breyta skrifstofuhúsnæði í íbúðir Annars vegar verði þetta nýbyggingar og hins vegar umbreyting á húsnæði sem ríkið nýtti áður undir stofnanir og margvíslega aðra starfsemi. Tuttugu til þrjátíu prósent íbúðanna verði hagkvæmar íbúðir, það er almennar íbúðir og íbúðir sem uppfylla skilyrði hlutdeildarlána, aðrar leiguíbúðir, til dæmis stúdentaíbúðir, leiguíbúðir Félagsbústaða og íbúðir fyrir eldra fólk og búseturéttaríbúðir. Önnur sveitarfélög næsta skrefið Á næstunni verði verkefnin auglýst og þá gefist uppbyggingaraðilum kostur á að sækja um að taka þátt í þeim. Í framhaldinu verði lóðirnar og eignirnar seldar til þeirra sem verða fyrir valinu og verkefnin fari svo áfram í frekara skipulagsferli. Næsta skref sé að vinna markvisst að uppbyggingu á ríkislóðum og ríkiseignum í fleiri sveitarfélögum. Nýju íbúðirnar á ríkisreitunum séu kjölfestan í öðrum húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar. Styðja við leigjendur og fyrstu kaupendur „Ég er uppalinn í Breiðholtinu og þegar uppbygging hófst þar á sínum tíma voru kynnt áform um að reisa 1.250 íbúðir. Hér erum við með 1.200 til 1.400 íbúðir og uppbyggingu af stærðargráðu sem munar um. Við erum að koma inn á markaðinn með lóðir sem hefur sárlega vantað því við verðum að byggja meira. Um leið erum við að jafna leikinn og styðja bæði við leigjendur og fyrstu kaupendur. Í ofanálag erum við að setja rækilega á dagskrá að breyta atvinnuhúsnæði í hentugar og góðar íbúðir. Við gerum þetta í góðu samstarfi við Reykjavíkurborg og samvinnan sýnir hversu miklu stjórnvöld geta áorkað þegar þau taka höndum saman,“ er haft eftir Ragnari Þór Ingólfssyni, félags og húsnæðismálaráðherra. Haft er eftir Daða Má Kristóferssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, að mikilvægt sé að tryggja að þróunarreitir ríkisins séu nýttir til uppbyggingar. Það hafi verið kyrrstaða í þessum málum sem hafi valdið því að uppbygging hafi ekki verið jafnhröð og ákjósanlegt hefði verið. „Við einsettum okkur að bæta samskipti ríkisins og sveitarfélaga. Þetta er enn eitt dæmi um árangurinn af því. Með þessum samningnum fjölgum við íbúðum í borginni, bæði með umbreytingu á eldra húsnæði í eigu ríkisins og betri nýtingu lóða.“ Íbúðir verða byggðar í kringum húsnæði Listaháskóla Íslands í Laugarnesi.Stjórnarráðið Loks er haft eftir Heiðu Björgu Hilmisdóttur borgarstjóra að þessir samningar sýni hverju sé hægt að áorka þegar ríki og borg vinna saman af alvöru að húsnæðismálum. „Við í meirihlutanum í borginni höfum lagt áherslu á fjölbreytt framboð húsnæðis, hraðari uppbyggingu og að nýta það landrými sem fyrir hendi er, í samræmi við húsnæðisáætlun Reykjavíkurborgar. Hér erum við að leggja drög að yfir þúsund nýjum heimilum fyrir íbúa og tryggja um leið að hluti þeirra verði hagkvæmar íbúðir fyrir þá íbúa sem þurfa á því að halda. Þetta samstarf skilar fleiri heimilum , sterkara samfélagi og öflugri húsnæðismarkaði.“
Húsnæðismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Borgarstjórn Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira