„Þetta einvígi mun ráðast á þeim“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 23. apríl 2026 23:32 Björgvin Páll telur stórstjörnur eiga eftir að fæðast í þessu einvígi. Á morgun hefst úrslitaeinvígi Vals og FH um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta og gamla brýnið Björgvin Páll Gústavsson segir ungu leikmennina eiga eftir að ráða úrslitum.
Enginn leikmaður í einvíginu býr yfir meiri reynslu en Björgvin Páll og vafalaust mun hans reynsla vega þungt fyrir Valsmenn í þessari seríu. Það verður sérlega mikilvægt fyrir Björgvin að verja áfram vel því hinumegin hefur Daníel Freyr Andrésson líka verið sjóðheitur. „Já undanúrslitaeinvígin voru svoleiðis hjá báðum liðum, þau réðust á markvörslu. Í svona stórum leikjum þá er markvarslan alltaf mikilvæg og þar spilar líka inn í hvernig vörnin er. Hraðaupphlaupin hjá okkur eru háð því, að þeir spili góða vörn og ég verji, þá verðum við hættulegri fram á við.“ Björgvin hefur hins vegar trú á því að markmennirnir muni ekki ráða úrslitum í einvíginu, heldur verði það einhver ungur leikmaður í öðru hvoru liðinu. Bæði lið eru einmitt með mjög efnilega leikmenn, til dæmis Gunnar Róbertsson hjá Val og Garðar Inga Sindrason eða Ómar Darra Sigurgeirsson hjá FH. „Það eru leikmenn í báðum liðum sem hafa þroskast gríðarlega hratt og tekið að sér stór hlutverk, bæði varnarlega og sóknarlega. Þeir hafa verið áberandi, Garðar og Ómar hjá þeim og Gunnar hjá okkur, sóknarlega. En svo eru líka öflugir varnarmenn, eins og Ingvar [Dagur Gunnarsson] hjá þeim eða Dagur Leó [Fannarsson] hjá okkur… Þetta einvígi mun klárlega ráðast á þeim.“ Klippa: Björgvin Páll spáir í spilin fyrir úrslitaeinvígið Viðtalið við Björgvin Pál má sjá í spilaranum að ofan. Leikur Vals og FH hefst klukkan 19:30 á morgun, föstudag, og verður í beinni textalýsingu á Vísi.
Olís-deild karla Valur FH Mest lesið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Íslenski boltinn Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Fótbolti Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Körfubolti Milner aftur til Liverpool Enski boltinn „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Enski boltinn Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið Fótbolti Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Raheem Sterling játar sök Enski boltinn VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Enski boltinn Fleiri fréttir Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Sjá meira