Uppgjörið: Valur - Fram 31-27 | Kústarnir sóttir í hálfleik Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 22. apríl 2026 21:05 Úr leik liðanna í kvöld Vísir/Pawel Valur sópaði Fram úr leik í undanúrslitaeinvígi liðanna í Olís deild kvenna í handbolta í kvöld. Lokatölur á Hlíðarenda 31-27 sigur Vals sem vinnur einvígið 3-0 og mætir annað hvort ÍBV eða liði Hauka í úrslitaeinvíginu. Leikurinn byrjaði jafnt milli liðanna en tapaðir boltar og misheppnaðar sendingar hjá Fram olli því að Valskonur tóku fljótt forystuna í leiknum. Tveir fimm mínútna kaflar án marka einkenndu að vissu leyti fyrri hálfleikinn en Valskonur voru þó töluvert betri aðilinn og leiddu með fimm mörkum þegar flautað var til hálfleiks. Stuðningsmenn Vals létu sig hverfa í hálfleik en kom þá í ljós að farið var stutta ferð í geymsluna á Hlíðarenda og kústarnir sóttir. Síðari hálfleikur líktist þeim fyrri þar sem Valskonur voru með yfirhöndina allan tímann. Þrátt fyrir góða róteringu á liði Vals tókst Fram ekki að minnka bilið og Valskonur sigruðu með fjórum mörkum, 31-27. Atvik leiksins Elísabet Millý Elíasardóttir fékk tækifæri í marki Vals í kvöld í seinni hálfleik og stóð sig afar vel. Stuðningsmenn Vals tóku einnig vel á móti henni. Stjörnur og skúrkar Lilja Ágústsdóttir og Lovísa Thompson voru markahæstar hjá Val með fimm mörk hvor. Hjá Fram var Hulda Dagsdóttir atkvæðamest með níu mörk. Stemning og umgjörð Fínasta stemning á Hlíðarenda en þó örlítið meiri Valsmegin. Dómarar Það reyndi lítið á dómaratvíeyki kvöldsins sem stóð sig með prýði. Olís-deild kvenna Valur Fram
Grindavík - Valur 82-81 | Deildarmeistararnir yfir þegar það skipti máli í leik tveggja hálfleika Körfubolti
Grindavík - Valur 82-81 | Deildarmeistararnir yfir þegar það skipti máli í leik tveggja hálfleika Körfubolti