Eru ekki að sjá „þessa holskeflu“ verðhækkana eins og fyrir fjórum árum
Þótt tilkynningar um verðhækkanir séu farnar að berast í auknum mæli frá birgjum þá er ástandið enn sem komið er ekkert í líkingu við það sem var vegna hækkunar á orku- og hrávöruverði eftir innrás Rússa í Úkraínu fyrir fjórum árum, að sögn forstjóra Haga. Nýtt samstarf við danskan smásölurisa mun í senn lækka verð í verslunum Haga og ætti jafnframt að bæta framlegðina.
Tengdar fréttir
Eimskip innleiðir tímabundið „neyðarálag“ vegna hækkunar olíuverðs
Eftir tugprósenta hækkun á olíuverði á undanförnum vikum hefur Eimskip ákveðið að bregðast við með því taka upp sérstakt „neyðarálag“ sem leggst ofan á flutningsgjald félagsins.
Matarverðbólgan stafar núna „aðallega af innlendum þáttum“
Verðbólga í matvælum og drykkjarvörum stafar núna að stórum hluta af innlendum þáttum, sem meðal annars skýrir miklar verðhækkanir á landbúnaðarafurðum, á meðan við erum að sjá innfluttar vörur hækka almennt lítið í verði, að sögn forstjóra stærsta smásölufyrirtækis landsins.
Forstjóri Haga segir ekki sömu rök og áður fyrir miklum hækkunum frá birgjum
Það eru vonbrigði hvað matarverðbólgan virðist ætla að vera þrautseig, að sögn forstjóra stærsta smásölufyrirtækis landsins, einkum núna þegar ekki eru sömu forsendur og áður fyrir miklum kostnaðarhækkunum og hann ætlist til þess að það „speglist í verðákvörðunum okkar birgja.“ Þá boðar hann tíðindi innan skamms í tengslum við frekari arðbæran vöxt félagsins, hálfu ári eftir að kaupin á færeyska verslunarfélaginu SMS voru kláruð, og að Hagar séu á þeim vettvangi „hvergi nærri hætt.“