Kerr íhugar framtíð sína eftir tap í umspilinu Ágúst Orri Arnarson skrifar 18. apríl 2026 09:30 Steve Kerr er óviss um næstu skref. Stephen Lam/San Francisco Chronicle via Getty Images Orlando Magic og Phoenix Suns urðu í nótt síðustu liðin til að tryggja sig inn í úrslitakeppni NBA deildarinnar, á kostnað Charlotte Hornets og Golden State Warriors. Óvíst er hvort Steve Kerr haldi áfram að þjálfa stríðsmennina.
Samningur Steve Kerr er að renna út og hann vildi ekki skrifa undir framlengingu fyrir þetta tímabil. Viðræður voru settar á ís þangað til eftir tímabilið og nú er því lokið. Eftir 111-96 tapið gegn Suns í nótt sagðist þjálfarinn ætla að nýta næsta viku eða tvær til að íhuga framtíðina. „Ef [mínum tíma er lokið], er ég ekkert nema þakklátur fyrir þetta frábæra tækifæri sem ég hef fengið. Að þjálfa þetta lið, fyrir framan frábæra áhorfendur, með leikmenn eins og Steph Curry, Draymond Green og alla hina,“ sagði Kerr við ESPN. "I don't know what's gonna happen next, but I love you guys to death." 💛Steve Kerr's message to Steph and Draymond at the end of the Suns game 🥹 pic.twitter.com/78UfbFHXCm— NBA on Prime (@NBAonPrime) April 18, 2026 Kerr var að klára sitt tólfta tímabil sem þjálfari Warriors. Hann leiddi liðið til meistaratitils árið 2015, stýrði liðinu síðan til besta árangurs í deildarkeppni tímabilið eftir, og átti eftir að skila þremur meistaratitlum í viðbót árið 2017, 2018 og 2022. Undir hans stjórn, með Steph Curry fremstan í fararbroddi, urðu Warriors að einu mesta stórveldi sem NBA deildin hefur séð. En á síðustu tímabilum hefur liðið rétt svo slefað inn í úrslitakeppnina og ekki verið líklegt til að vinna titilinn. “I’m the luckiest guy in the NBA's history.” 🙌From playing alongside greats, to coaching greats… to becoming one himself... Steve Kerr reflects on his special NBA journey thus far. https://t.co/GyFAlQRjIx pic.twitter.com/en5bbdGXN5— NBA (@NBA) April 18, 2026 Curry er sjálfur orðinn 38 ára gamall en enn í hæsta gæðaflokki. Hann á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið en hefur lýst yfir áhuga á framlengingu og einnig sagt að hann vilji hafa Kerr áfram sem þjálfara. Draymond Green verður sömuleiðis áfram á næsta tímabili, þrátt fyrir að hafa verið sterklega orðaður við skipti. Hann ætlar að nýta leikmannaréttinn og framlengja um eitt ár. Kerr segir samband sitt og Curry hafa mikið að segja um ákvörðunina. „Það er hluti af jöfnunni. Ég vil ekki labba í burtu frá Steph. Ég er allavega alls ekki að fara til að þjálfa eitthvað annað lið í NBA. Ég myndi aldrei yfirgefa Steph. En það þarf allt að smella saman, það eru samtöl sem eiga eftir að eiga sér stað,“ sagði Kerr. Magic völtuðu yfir Hornets Eins og Suns gerðu gegn Warriors tókst Orlando Magic að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni, með 121-90 stórsigri gegn Charlotte Hornets. 31 stiga sigurinn er sá stærsti í stuttri sögu umspilsins.
NBA Mest lesið Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Golf Gunnlaugur Árni á U.S. Open Golf Rekin fyrir falsfrétt um að pabbi Messi væri dáinn Fótbolti Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Fótbolti Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Fótbolti Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Golf Tár hetjunnar höfðu áhrif og mamma hans fær að koma á HM Fótbolti Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Handbolti Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Fótbolti Straujaði tökumann á HM sem fékk treyju að gjöf Fótbolti Fleiri fréttir Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Sjá meira