Uppgjör: KR-Keflavik 83-91 | Keflavíkurkonur í undanúrslit Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 16. apríl 2026 21:10 Keishana Washington var stórkostleg í Keflavíkurliðinu með 39 stig, 7 fráköst og 7 stoðsendingar. Vísir/Diego Keflavík tryggði sér sæti í undanúrslitum Bónusdeildar kvenna í körfubolta í kvöld eftir átta stiga sigur á KR, 91-83, í æsispennandi oddaleik í Vesturbænum. KR var einu stigi yfir í hálfleik en Keflavíkurkonur sigldu fram úr í seinni hálfleik og sendu nýliðana í sumarfrí. Keishana Washington var stórkostleg í Keflavíkurliðinu með 39 stig, 7 fráköst og 7 stoðsendingar. Keflavík lenti 1-0 og 2-1 undir í einvíginu en vann tvo síðustu leikina og mætir Haukum í undanúrslitunum. Hinum megin mætast Njarðvík og Grindavík. Oddaleikur í viðureign KR og Keflavíkur fór fram á Meistaravöllum í 8-liða úrslitum Bónus deildar kvenna í kvöld. Síðasta sætið í 4-liða úrslitum var í boði og var mikil spenna fyrir leik kvöldsins. Eftir mikinn baráttuleik þar sem allt var skilið eftir á gólfinu var það að lokum Keflavík sem reyndist sterkari og fór með átta stiga sigur 83-91. Leikurinn fór heldur fjörlega af stað þar sem bæði lið settu stig á töfluna strax í fyrstu sóknum sínum. KR náði að komast skrefinu framar en gestirnir frá Keflavík sem voru þó ekki langt undan þökk sé Keishana Washington sem var öflug að ráðast á körfuna. Molly Kaiser og Jiselle Thomas voru einnig að hitta vel fyrir KR sem leiddi eftir fyrsta leikhluta 25-21. Leikurinn jafnaðist meira í öðrum leikhluta og var alveg stál í stál. Bæði lið skiptust á því að taka áhlaup, Keflavík að jafna og KR að sækja smá forystu aftur. Keflavík náði að sækja forystu aftur og leit út fyrir að þær væru á leið inn í hálfleikinn yfir en Eve Braslis var ekki á sama máli og skellti flautuþrist í andlitið á Keflavík undir lok fyrri hálfleiks og KR fór inn í hlé með minnsta mun, 46-45. Gestirnir frá Keflavík mættu með krafti út í seinni hálfleikinn og sóttu forystuna snemma en náðu þó ekki að slíta sig frá spræku liði KR. Einvígið var stál í stál í þriðja leikhluta og var gríðarlega lítið sem skildi á milli. Frábær byrjun á leikhlutanum fyrir Keflavík skilaði þó því að þær voru með forystu eftir þriðja leikhlutann 68-70. Keflavík byrjaði fjórða leikhluta sterkt en Molly Kaiser steig þá heldur betur upp fyrir KR og setti stór skot til þess að koma þessu aftur í jafnan leik fyrir KR. Keishana Washington og Molly Kaiser skiptust á því að setja stóru skotin fyrir sín lið. Eftir harða baráttu í fjörutíu mínútur varð því miður annað liðið að tapa þessum leik en hvorugt liðið átti skilið að tapa í kvöld. Það fór svo að Keflavík reyndist sterkari á lokasprettinum og sendi KR í sumarfrí með átta stiga sigri 83-91. Atvik leiksins Keishana Washington tók bara yfir leikinn fyrir Keflavík í fjórða leikhluta og sótti þennan sigur. Molly Kaiser reyndi að halda í við hana en það var bara ekki nóg. Stjörnur og skúrkar Keishana Washington bar höfuð og herðar hér í kvöld. Hún setti 39 stig, gaf sjö stoðsendingar og tók sjö fráköst. Hún var gjörsamlega frábær í liði Keflavíkur í kvöld. Hjá KR var Molly Kaiser hættulegust og endaði með 30 stig. Dómararnir Sigmundur Már, Davíð Kristján og Jón Þór voru á flautunni í kvöld. Mér fannst þeir komast bara vel frá sínu í kvöld. Þeir höfðu ekkert út á þeirra störf að setja og komust vel frá sínu. Stemningin og umgjörð Það var flott mæting á Meistaravelli og einstaklega skemmtilegt að sjá hvað það mættu margir Keflvíkingar í kvöld. Bæði lið fengu hörku stuðning úr stúkunni eins og þetta á auðvitað að vera í leik fimm í seríu. Úrslitakeppnin í körfubolta er skemmtilegasti tími ársins, það er bara þannig. Hörður Axel Vilhjálmsson er þjálfari kvennaliðs Keflavíkur í körfubolta.Vísir/Pawel „Partur af liðsheild að átta sig á því hvað er að virka“ „Liðsheildin og að halda áfram í fjörutíu mínútur“ sagði Hörður Axel Vilhjálmsson þjálfari Keflavíkur aðspurður um hvað hafi skilað þessu í kvöld í samtali við Ágúst Orra Arnarsson eftir sigurinn í kvöld „Mismunandi leikmenn að stíga upp á mismunandi tímapunktum og bara mjög sáttur með liðið í heild sinni“ Það var hart barist á Meistaravöllum í kvöld og mjög jöfn barátta en Keflavík hafði að lokum betur. „Algjörlega og fullt hrós á KR. Þær spila mjög sterkt og mikið af íþróttamönnum sem láta mann hafa virkilega fyrir hlutunum og ég þakka þeim kærlega fyrir seríuna“ Keishana Washington átti stórleik í kvöld og var með gríðarlega mikilvægt framlag. „Hennar framlag var bara mjög mikilvægt. Hún skoraði fullt en að sama skapi þá eru aðrar að opna fyrir hana til þess að hún skori fullt og það er partur af liðsheild að átta sig á því hvað er að virka og taka smá kredit á það að láta það virka sem virkar“ „Í kvöld var það Keishana að sækja og við spilum upp á það og hún skilaði frábæru verki“ sagði Hörður Axel Vilhjálmsson. Daníel Andri Halldórsson, þjálfari KR.Vísir/Anton Brink „Var að vonast eftir einhverju öskubusku ævintýri“ „Þetta er svekkjandi, það er óhætt að segja það“ sagði Daníel Andri Halldórsson svekktur eftir tapið í kvöld. „Leiðinlegt að enda þetta svona. Flotta tímabil heilt yfir hjá nýliðum í þessari deild og maður var að vonast eftir einhverju öskubusku ævintýri hérna í dag og fara inn í undanúrslitin“ KR átti fá svör við sóknarleik Keflavíkur og þá sér í lagi ekki nein svör við sóknarleik Keishana Washington í kvöld. „Það er bara eitthvað af hverju. Vörnin okkar heldur engu vatni hérna stóran hluta af leiknum og Keishana Washington endar hérna með hátt í fjörutíu stig“ „Það er bara lélegt plan hjá mér í upphafi leiks sem að við réttum úr en komum engum vörnum fyrir hana og svo bara eins og ég talaði um fyrir leik þá er bara drullu erfitt að vinna leik þegar maður skýtur ekki einu sinni tuttugu prósent“ „Ef við hefðum skotið þrjátíu komma sex prósent eins og við höfum gert að meðaltali á tímabilinu þá hefðum við þó ég sé ekki góður í stærðfræði þá held ég að við hefðum unnið þennan leik þá“ sagði Daníel Andri Halldórsson. Sofie Tryggedsson hefur verið góð í stærstu leikjum Keflavíkur í vetur.Vísir/Anton „Mér er í alvörunni alveg sama svo lengi sem við vinnum“ Keflavík tryggði sig inn í 4-liða úrslit Bónus deild kvenna eftir átta stiga 83-91 sigur á KR í oddaleik á Meistaravöllum í kvöld. Sofie Tryggedsson ræddi við Ágúst Orra Arnarsson eftir leik. „Þetta var bara frábær liðssigur aftur“ sagði Sofie Tryggedsson leikmaður Keflavíkur eftir sigurinn í kvöld. „Við rústuðum þeim í síðasta leik og við vildum gera það aftur. Ég held að við höfum sannað það að við séum miklu betra lið í síðasta leik og í þessum leik snérist þetta bara um hver væri kraftmeiri og meira tilbúinn í slaginn og það voru við“ Þetta var mjög jafn leikur og þetta snérist um það hvort liðið myndi berjast meira. „Það er spilað hart og þetta er úrslitakeppnin og mér finnst að það sé eitthvað sem lið þurfa bara að venjast. Það er mikill barningur en ég er bara ánægð með að við höfum haft betur því við áttum skilið að komast í undanúrslit og fá tækifæri til þess að fá annan dag og aðra æfingu með þessu liði“ „Við fáum aðra seríu þar sem við fáum að spila saman og það er það sem við erum að spila fyrir, tækifærið að fá að spila saman“ Sofie Tryggedsson átti frábæra innkomu af bekknum fyrir Keflavík í kvöld. „Mér er í alvörunni alveg sama svo lengi sem við vinnum. Ég vill bara leggja í púkkið hvort sem það séu einhverjir þristar, sendingar eða gott screen svo lengi sem við vinnum“ „Ég nýt þess að spila með þessu liði og mér finnst við spila virkilega vel og þetta er skemmtilegur körfubolti. Við erum að færa boltann vel og við spilum vel saman og það er það sem við spilum fyrir, skemmtilegan körfubolta“ Keishana Washington átti stórleik í kvöld og var stigahæst á vellinum með 39 stig. „Hún er frábær. Hún hefur verið það allt tímabilið og hún getur sett stig á töfluna þegar hún þarf þess en 39? Vá“ „Hún er frábær leikstjórnandi. Hún fær alla til að taka þátt og er mjög snjöll að stilla upp í kerfi og stýra því hvenær við eigum að keyra á þetta eða slaka aðeins á. Hún er einn besti leikstjórnandi sem ég hef spilað með og hún er svo auðmjúk. Frábær leikmaður og frábær persóna“ sagði Sofie Tryggedsson. Bónus-deild kvenna KR Keflavík ÍF