Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. apríl 2026 11:33 Fastagestir í sund geta glaðst en þeir sem sækja sund af og til þurfa að greiða meira. Vísir/Vilhelm Breytingar á gjaldskrám sundlauga Reykjavíkurborgar, Ylstrandarinnar og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins voru samþykktar í borgarstjórn í gær. Ársgjaldið í sundlaugarnar lækkar en stakur miði er dýrari.
Í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að ný gjaldskrá hafi það að markmiði að hvetja til aukinnar notkunar og stuðla að sanngjarnari gjaldskrá. Hún eigi að umbuna borgarbúum sem eru fastagestir en á sama tíma tryggja að aðrir gestir borgi nær raunkostnaði fyrir þjónustuna. Þar er sérstaklega minnst á erlent ferðafólk sem sækir þessa þjónustu borgarinnar. Ársgjaldið í sund fer úr 48 þúsund krónum í 34 þúsund krónur á meðan stakt gjald fer úr 1430 krónum í 1500 krónur. Þá hækkar tíu miða kort úr 6.520 krónum í 7 þúsund krónur. Reykvísk ungmenni sem eru sautján ára og yngri fá frítt í sund og á Ylströndina. Breytingarnar taka gildi 5. maí. „Verð á ársmiðum í sund, Ylströnd og Fjölskyldu- og húsdýragarðinn lækkar þannig um 21-77%. Þá er í fyrsta sinn boðið upp á að kaupa ársmiða í áskrift. Ef farið er oftar en einu sinni í viku í sund, einu sinni í mánuði á Ylströndina eða oftar en tvisvar á ári í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, þá borgar sig að vera í áskrift,“ segir í tilkynningunni. Árskort barna í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn lækkar um 77 prósent, úr 17.600 krónum í fjögur þúsund krónur, á meðan árskort fullorðinna lækkar um sextíu prósent. Líkt og með sundið þá hækkar verðið á stöku gjaldi fullorðinna, úr 1760 krónum í 2800 krónur. Þá þurfa eldri borgarar nú að greiða fyrir komuna. Í sumar verða sundlaugarnar í Reykjavík opnar lengur. Frá 1. júní til 31. ágúst verða sundlaugar borgarinnar opnar til tíu. Fréttin var uppfærð með nýjum töflum frá Reykjavíkurborg.
Sundlaugar og baðlón Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Sjá meira