„Ekki til betri skemmtun en þetta“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 14. apríl 2026 21:37 Sigursteinn Arndal fer yfir málin með sínum mönnum. Vísir/Anton Brink Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, segir að einbeiting liðsins hafi skilað FH-ingum sigri gegn Haukum í þriðja leik liðanna í undanúrslitaeinvígi Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. „
Ég held að þetta hafi aðallega snúist um það að við héldum alltaf áfram og vorum bara að berjast við að halda fókus,“ sagði Sigursteinn eftir sigur FH-inga í kvöld. „Þetta eru bara þannig leikir að það munar engu. Varnarlega erum við sterkir, Danni (Daníel Freyr Andrésson) kom sterkur inn og Birkir (Benediktsson) var frábær. Hann var ómetanlegur fyrir okkur í dag. Annars var þetta bara liðsheild, liðsheild og aftur liðsheild.“ Þá tók Sigursteinn undir að það væri gott að fá framlag frá mörgum leikmönnum í kvöld, en var þó ekki sammála því að Garðar Ingi Sindrason, sem oft og tíðum hefur dregið vagninn sóknarlega, hafi ekki skilað sínu í kvöld. Garðar skoraði ekki mark fyrir FH í kvöld, en bjó þó til fjögur fyrir liðsfélaga sína. „Ég er bara pínu ósammála. Garðar er búinn að setja markið ótrúlega hátt, enhann er bara FH-liðinu svo gríðarlega mikilvægur. Þú sérð það ekkert alltaf á einhverri tölfræði eða skoruðum mörkum. Hann er bara liðinu gríðarlega mikilvægur og hann er að taka alvöru framfararskref í því að leiða lið eins og FH-liðið áfram í svona einvígi.“ Hann segir einnig að liðið þurfi að læra af leiknum í kvöld til að geta klárað einvígið á Ásvöllum á föstudaginn. „Við þurfum að sýna að við höfum lærat eitthvað af síðasta leik í Krikanum. Ekki það að við höfum komið eitthvað lélegir í síðasta útileik, en við þurfum að mæta ennþá klárari og með ennþá betri fókus en þá. Við þurfum að taka þetta síðasta skref með fólkinu okkar og ég vil bara hvetja alla FH-inga til að mæta á föstudaginn því það er ekki til betri skemmtun en þetta,“ sagði Sigursteinn að lokum.
Olís-deild karla FH Haukar Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Fleiri fréttir Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Sjá meira