Sport

Besta sætið: HSÍ stendur uppi sem sigur­vegari

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Landsliðið er í góðum höndum hjá Snorra Steini.
Landsliðið er í góðum höndum hjá Snorra Steini. vísir/vilhelm

Eftir að hafa mátt þola mikla gangrýni fyrir seinagang í samningaviðræðum við landsliðsþjálfarana kom HSÍ skemmtilega á óvart í dag.

Þá kynnti sambandið nýjan samning við þá Snorra Stein Guðjónsson og Arnór Atlason til næstu sex ára. Þeir eiga að þjálfa landsliðið fram yfir ÓL 2032. Ekki margir sem sáu þetta fyrir.

Strákarnir í Besta sætinu fögnuðu þessu skrefi HSÍ enda hafa Snorri og Arnór sýnt að þeir eru á réttri leið með landsliðið. Það er í góðum höndum næstu árin og verður spennandi að fylgjast með framvindu mála hjá liðinu.

Haukar og FH halda lífi í úrslitakeppni Olís-deildar karla á meðan Valur sópaði KA í frí.

Það er hrikalega spennandi kvöld fram undan í Meistaradeildinni þar sem Liverpool og Barcelona þurfa að vinna upp tveggja marka forskot PSG og Atletico.

Stelpurnar okkar í kvennalandsliðinu í fótbolta eru svo í eldlínunni á Laugardalsvelli í kvöld. Mikilvægur leikur gegn Úkraínu sem þarf að vinna.

Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Það kemur út alla virka daga og er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×