Valur - Kefla­vík 79-78 | Sturluð sigurkarfa Kára

Pálmi Þórsson skrifar
Kári Jónsson sýndi og sannaði hve stórkostlegur hann er.
Kári Jónsson sýndi og sannaði hve stórkostlegur hann er. Paweł/Vísir

Kári Jónsson skoraði hreint ótrúlega þriggja stiga sigurkörfu fyrir Val í kvöld, þegar liðið hafði aðeins 0,4 sekúndur í lokasókn sína gegn Keflavík, í þriðja leik í 8-liða úrslitum Bónus-deildarinnar í körfubolta.

Remy Martin virtist hafa tryggt Keflavík sigur þegar hann skoraði á lokasekúndu leiksins en Valsmenn fengu 0,4 sekúndur og það dugði til að koma boltanum í hendur Kára sem kastaði samstundis og setti niður þrist.

Valsmenn unnu því 79-78 og eru komnir í 2-1 í einvíginu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira