Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 9. apríl 2026 11:33 Ragnar Freyr Ingvarsson segir í færslu á Facebook að verið sé að fara með fleipur. Vísir/Vilhelm Ragnar Freyr Ingvarsson, læknir sem var sagt upp störfum á Landspítalanum í gær, segir það ekki rétt að honum hafi verið boðað hærra starfshlutfall. Farið sé með fleipur.
Ragnar Freyr greindi frá því á Facebook í gær að honum hefði verið sagt upp störfum á Landspítalanum. Hann var í nokkurra mánaða launalausu leyfi en starfaði annars í þrjátíu prósenta starfshlutfalli. Uppsögnin vakti mikla athygli enda hefur verið fjallað mikið um læknaskort á spítalanum. Í morgun var rætt við Rafn Benediktsson, framkvæmdastjóri bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítalans, sem sá um uppsögnina. Þar sagði hann að best væri ef fólk væri í hærra starfshlutfalli og væri Ragnari velkomið að halda áfram að starfa á spítalanum tæki hann við áttatíu til hundrað prósenta starfi. Rafn sagðist vonast til að hægt verði að funda í dag en þegar sé búið að nefna við hann möguleikann á hærra starfshlutfalli. Í færslu á Facebook segir Ragnar Freyr hins vegar að verið sé að fara með fleipur. „Landspítali hefur ekki verið í sambandi við mig varðandi aukið starfshlutfall. Enginn fundur hefur verið boðaður í dag,“ skrifar hann í færslu. „Í samtali mínu við Rafn í gær var mér ekki boðin aukning á starfshlutfalli heldur skýrt greint frá því að starf mitt væri lagt niður og mér því sagt upp.“
Landspítalinn Heilbrigðismál Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Sjá meira