KR - Kefla­vík 94-80 | Thomas tók yfir í fjórða leik­hluta

Pálmi Þórsson skrifar
Jiselle Thomas átti stórleik. 
Jiselle Thomas átti stórleik. 

KR er komið með 2-1 forystu í einvíginu gegn Keflavík eftir 94-80 sigur í þriðja leik liðanna. Lengi stefndi í sigur Keflavíkur en KR sneri leiknum algjörlega við.

KR var snemma lent nokkuð langt á eftir gestunum frá Keflavík. Heimakonur unnu sig hins vegar vel inn í leikinn og minnkuðu muninn. Fjórði leikhlutinn var síðan algjörlega í þeirra eigu og Jiselle Thomas naut sín hvað best á þeim kafla.

Fyrir leikinn höfðu liðin unnið sitthvorn heimaleikinn og því afar mikilvægt að landa þessum fyrir bæði lið og setjast í bílstjórasætið í seríunni.

Keflavík byrjaði leikinn mun betur og voru skrefi á undan fyrstu mínútur leiksins áður en þær tóku fleiri skref framúr og bjuggu til góða forystu. Keishana Washington fór þar fyrir sínum konum en hún skoraði körfur í öllum regnbogans litum. Staðan eftir 1.leikhluta var því 27-20.

Í 2.leikhluta héldu þær úr Keflavík áfram að stíga á bensíngjöfina og voru komnar með 15 stiga forystu sem var það mesta sem þær áttu eftir að leiða með. Því KR komu með krók á móti bragði og í sama leikhluta nöguðu þær forystuna niður hægt og bítandi en þegar 23.Sekúndur voru eftir af leikhlutanum var staðan 44-46 og Keflvíkingar ekki búnar að skora í 5.mínútur. Þá steig Thelma Dís Ágústsdóttir upp og negldi niður þrist til að gefa sínum konum smá andrými og Keflavík leiddi í hálfleik 44-49.

3.leikhluti spilaðist eiginlega alveg eins. Keflavík mættur með allar byssur úti og náðu mjög snemma að búa sér aftur til gott forskot en um miðbik leikhlutans voru þær komnar með 14 stiga forskot. Þá ákváðu KR að koma enn einu sinni til baka og minnkuðu þetta aftur niður í 5 stig áður en leikhlutinn kláraðist. Leikhlutinn sjálfur fór þá 21-21 en staða fyrir 4. og síðasta leikhlutann 65-70.

Jiselle Thomas mætti síðan í 4.leikhluta en hún opnaði leikhlutan á því að setja niður tvo þrista í röð til að koma KR yfir. Eftir það þá var það fram og til baka og hvorugt lið líklegt til að koma með áhlaup til þess að klára leikinn. En svo gerðist það allt í einu. Þegar 4.mínútur voru eftir af leiknum mætti Jiselle Thomas aftur og setti þrjá þrista í röð. Það gaf KR 11 stiga forystu og eftirleikurinn hjá KR auðveldur og þær uppskáru 14 stiga sigur 94-80.

Atvik leiksins

4.leikhluti var allur hennar Jiselle Thomas. Hún setti 5 þrista í leiknum. Alla í röð. Alla í 4.leikhluta.

Stj örnur og skú rkar

Jiselle Thomas er stjarnan.

D ómarar

Gunnlaugur Briem, Davíð Kristján og Ingi Björn mynduðu tríóið í kvöld. Gerðu mjög vel. Tók varla eftir þeim.

Stemming og umgj örð

Það var vel mætt í Vesturbænum í kvöld. Gríðarleg stemning og fjör.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira