Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Eiður Þór Árnason skrifar 7. apríl 2026 21:40 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar lagði fram þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Vísir/Arnar Fleiri eru andvígir aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB) en hlynntir, samkvæmt nýrri könnun Gallup. Í henni sögðust 47 prósent svarenda vera andvígir en 40 prósent hlynntir inngöngu. Þá sögðust 13 prósent vera hvorki hlynntir né andvígir.
Könnunin var framkvæmd fyrir Viðskiptablaðið sem greinir frá niðurstöðunum og því að andstaða gagnvart aðild Íslands að Evrópusambandinu virðist hafa aukist á síðastliðnu ári. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 54 prósent svarenda vera andvígir inngöngu Íslands en 46 prósent hlynntir. Andstaðan hefur ekki mælst meiri í könnunum Gallup frá árinu 2010, að því er fram kemur í frétt Viðskiptablaðsins. Spurningin var eftirfarandi: „Ert þú hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að Ísland gangi í Evrópusambandið (ESB)?“ Könnun Gallup var framkvæmd dagana 19. til 31. mars. Svarendur voru 817 talsins og úrtaksstærð 2.198. Nam þátttökuhlutfall því 37,2 prósentum. Meiri stuðningur við þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður Ef þingsályktunartillaga utanríkisráðherra nær fram að ganga munu landsmenn greiða atkvæði um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið þann 29. ágúst. Þátttakendur í Þjóðarpúlsi Gallup hafa einnig verið spurðir um afstöðu þeirra gagnvart þjóðaratkvæðagreiðslunni. Fyrir um mánuði var greint frá því að meirihluti svarenda hafi sagst vera hlynntur því að hún færi fram. Alls sögðust 33 prósent svarenda þá alfarið vera hlynntir atkvæðagreiðslunni, tólf prósent mjög hlynntir, þrettán prósent frekar hlynntir, tólf prósent hvorki né, sjö prósent svarenda frekar andvígir, fimm prósent mjög andvígir og átján prósent alfarið andvígir. Alls voru því 30 prósent svarenda andvígir og 58 prósent hlynntir þjóðaratkvæðagreiðslunni. Fréttin hefur verið uppfærð.
Evrópusambandið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skoðanakannanir Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Tengdar fréttir Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Meirihluti landsmanna er hlynntur þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Tæpur þriðjungur er andvígur. 9. mars 2026 16:12 Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum Innlent Fleiri fréttir Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Sjá meira
Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Meirihluti landsmanna er hlynntur þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Tæpur þriðjungur er andvígur. 9. mars 2026 16:12