Tiger var hissa á handtökunni og hringdi í Trump forseta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. apríl 2026 09:31 Hér má sjá myndina sem var tekin af Tiger Woods á lögreglustöðinni. Getty/Martin County Sheriff Bandaríska lögreglan hefur birt myndbandsupptökur frá handtöku Tiger Woods. Golfstjarnan sagðist hafa talað í síma við Donald Trump forseta eftir slysið.
Golfstjarnan var handtekin föstudaginn fyrir viku grunuð um akstur undir áhrifum í bílslysi nálægt heimili sínu í Suður-Flórída. Woods slapp ómeiddur frá atvikinu og enginn annar slasaðist. Nú hefur myndband úr líkamsmyndavél lögreglumanns við handtökuna verið birt. Þar kemur fram að stuttu eftir slysið segir Woods lögreglunni að hann hafi talað við forsetann, áður en hann lýsir yfir undrun þegar hann er handtekinn. „Ég ætla bara að halda þér hérna hjá okkur, vinsamlegast,“ sagði lögreglumaður við golfstjörnuna á meðan lögreglan rannsakaði vettvanginn. TIGER IN PATROL CAR | Video shows Tiger Woods in the back of a Martin County patrol car following his suspected DUI rollover crash. Read more: https://t.co/WW7hb8CU6E ⬅️👆 pic.twitter.com/OMYrFkui7L— WPEC CBS12 News (@CBS12) April 2, 2026 „Já, ég var rétt í þessu að tala við forsetann,“ svaraði Woods, á meðan hann veifaði símanum og gekk aftur í átt að lögreglumanninum. Kallar Tiger „mjög náinn vin“ Ekki er vitað hvaða forseta Woods er að tala um. Donald Trump sagði hins vegar við New York Post fyrr í vikunni að hann hefði talað við Woods eftir slysið. Forseti Bandaríkjanna hefur einnig áður kallað Tiger Woods „mjög náinn vin“. Myndbandsupptaka lögreglunnar sýnir síðan að fimmtugi maðurinn tekur áfengispróf og er settur í handjárn. „Á þessum tímapunkti tel ég að eðlileg starfsgeta þín sé skert. Og þú ert undir áhrifum óþekkts efnis, svo nú ert þú handtekinn fyrir akstur undir áhrifum,“ sagði lögreglumaðurinn við Woods. „Er ég handtekinn?“ „Er ég handtekinn?“ spyr greinilega undrandi Woods, á meðan hendur hans eru settar í handjárn. Woods sagði yfirvöldum að hann hefði verið að horfa á símann sinn og skipta um útvarpsstöð þegar Land Rover-bíll hans, sem var á ofsahraða, rakst aftan á vörubíl og valt á hliðina á íbúðagötu á Jupiter Island. Enginn slasaðist í árekstrinum sem varð síðdegis þann 27. mars. Body camera footage of Tiger Woods' arrest has been released, less than a week after the golf icon was taken into custody following a car crash in Florida and charged with driving under the influence. "I looked down at my phone and all of a sudden, boom," Woods said in the video. pic.twitter.com/gwACDEf71k— CBS News (@CBSNews) April 2, 2026 „Ég leit niður á símann minn og allt í einu, búmm,“ sagði Woods við lögreglumann þar sem hann kraup á grasflöt fyrir handtökuna. Þegar lögreglan kom á staðinn á Woods að hafa sýnt greinileg merki um að vera undir áhrifum. Woods reyndist ekki vera með áfengi í blóðinu en lögreglan telur að fimmtugi maðurinn gæti hafa verið undir áhrifum lyfja eða annarra efna. Samkvæmt AFP fundust tvær verkjatöflur með hýdrókódoni þegar Woods var handtekinn. Woods neitaði að gefa þvagsýni á staðnum. Á laugardagsmorgun var Woods sleppt gegn tryggingu fyrir lægstu upphæð sem lög leyfa. Í kjölfarið hefur hann birt yfirlýsingu þar sem hann tilkynnir að hann muni taka sér hlé frá sviðsljósinu til að fara í meðferð og einbeita sér að eigin heilsu eftir slysið. Woods, sem hikstaði við yfirheyrsluna, hreyfði höfuðið stöðugt í einu af edrúprófunum og lögreglumenn þurftu að segja honum nokkrum sinnum að halda í kyrru, samkvæmt handtökuskýrslunni. Þessi fimmtánfaldi risamótssigurvegari var einnig einn af helstu kandídötunum í fyrirliðahlutverkið fyrir lið Bandaríkjanna í Ryder-bikarnum 2027. Hlutverki sem hann hefur nú hafnað, líklega vegna þessa máls. „Ég stíg til hliðar um tíma til að leita mér meðferðar og einbeita mér að heilsu minni,“ sagði hann áður í yfirlýsingu.
Bílslys Tigers Woods Golf Mest lesið Mark ársins í Bestu deildinni komið? Íslenski boltinn ÍBV - KR 2-6 | Hrafnar fljúga Íslenski boltinn Andrea vann á Íslandsmeti og Stefán meistari eftir æsilegt hlaup Sport Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Enski boltinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Enski boltinn Yamal felldi tár en ætti að ná HM Fótbolti Litlu munaði að illa færi er Bill Clinton birtist óvænt Sport „Við litum út eins og þriðji flokkur“ Íslenski boltinn Talar stöðugt við Kristófer Acox: „Hræddur við að verjast mér“ Körfubolti Þór Ak. - Fram | Vígja nýjan völl Íslenski boltinn Fleiri fréttir DeChambeau drullufúll með aðstæður á LIV mótinu Sigurður fór hringinn á tíu höggum undir pari LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Hulda Clara fer frábærlega af stað í atvinnumennskunni Rory McIlroy gerði dóttur sína vandræðalega Heiða Rakel vann háskólamót Biðst afsökunar á bræðiskasti sínu á Masters-mótinu Strangar reglur í kringum græna Masters-jakkann „Trúi ekki að ég hafi beðið í 17 ár eftir grænum jakka“ McIlroy varði Masters-titilinn Mastersvaktin: Hver mun klæðast græna jakkanum? Í slæmum málum fyrir að hrópa á McIlroy: „Færðu mér son minn aftur“ Hnífjöfn barátta fyrir lokadag Masters Fór aftur holu í höggi á Masters og fær kristalsskál Sögulegt forskot McIlroy að gufa upp Skutlað í skólann og svo einkaþota á Augusta Magnaður McIlroy með stærsta forskot sögunnar Algjör martröð á Masters hjá MacIntyre Goðsagnir lögðu Tiger línurnar: „Hann á ekki að keyra“ Símabannið bitnaði illa á goðsögn Rose gerði rándýr mistök en Scheffler stóð sig stöðugt Titilvörnin hefst mjög vel hjá McIlroy en DeChambeau í basli „Hákarlinn“ enn kæstur þrjátíu árum eftir frægt klúður Hröðustu flatir sem til eru Notar kylfu úr þrívíddarprentara á Masters-mótinu Dagskráin í dag: Fyrsti dagur Masters, úrslitakeppni í körfu og Evrópuboltanum Fór holu í höggi á fjölskyldumótinu Sjáðu fullkomna púttið hjá dóttur McIlroy fyrir ári síðan McIlroy fær að kynnast fríðindum Masters-meistarans í fyrsta sinn Masters-miðvikudagur á Sýn Sport Sjá meira