Leik lokið:Grindavík - Njarðvík 87-97| Njarðvíkingar taka fyrsta leik með látum Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 1. apríl 2026 21:45 DeAndre Kane er algjör lykilmaður hjá Grindavík. vísir/Anton Úrslitakeppni Bónus deild karla hóf göngu sína í kvöld þar sem Deildarmeistararnir í Grindavík fengu Njarðvíkinga í heimsókn í leik eitt í HS Orku-höllinni. Eins og alltaf þegar þessi nágranna lið mætast var hart barist á gólfinu. Það var mikil barátta allt frá fyrstu mínútu og ljóst að bæði lið ætluðu að láta hvort annað hafa fyrir öllu í þessum leik. Leikurinn var mjög jafn framan af í fyrsta leikhluta en Grindavík tóku skrefið fram úr eftir því sem á leið. Stóru skotin voru ekki að detta fyrir gestina á meðan þau duttu fyrir heimamenn og Grindavík leiddi með tíu stigum 24-14 eftir fyrsta leikhluta. Bæði lið skiptust á áhlaupum í öðrum leikhluta. Grindavík náði mest í tólf stiga forskot en Njarðvíkingar voru duglegir að saxa á en í hvert skipti sem þeir nálguðust einhverja endurkomu duttu stóru skotin hjá Grindavík. Njarðvík náði flottum kafla undir lok leikhlutans og náðu forskotinu niður í tvö stig með rétt um sex sekúndur eftir en sendu svo Jeremy Pargo á vítalínuna sem kom Grindavík í fjögurra stiga forskot fyrir hálfleik 41-37. Grindavík mættu grimmir til leiks í þriðja leikhluta og byrjuðu að sækja gott forskot snemma. Í hvert sinn sem Njarðvík nálgaðist komu stór skot frá heimamönnum til að halda þeim frá. Þegar um tvær mínútur voru eftir af þriðja leikhluta small eitthvað hjá Njarðvíkingum og nú voru það gestirnir sem voru að setja stóru skotin. Njarðvík náði forystunni þegar um hálf mínúta var eftir af þriðja leikhluta en Jeremy Pargo sá til þess að Grindavík leiddi með minnsta mun eftir þrjá leikhluta 65-64. Njarðvíkingar mættu með hvelli út í fjórða leikhluta og settu hvert skotið á fætur öðru sem þvingaði Grindavík í leikhlé eftir rúmlega tvær mínútur í fjórða leikhluta. Atvik leiksins Uppákoman hérna þegar það eru um tvær mínútur eftir. Stjörnur og skúrkar Sven Smajlagic [23 stig] og Dominykas Milka [24 stig] voru öflugir sóknarlega fyrir Njarðvíkinga. Luwane Pipkins [19 stig] átti líka góð augnablik. Hjá Grindavík var Jeremy Pargo horn í síðu gestana en hann endaði með 25 stig. Dómararnir Bjarki Þór, Bjarni Hlíðkvist og Sófus Máni sáu um flautuna hér í HS Orku-höllinni í kvöld. Gríðarlega erfiður leikur að dæma á köflum og ég gef þeim alveg slaka með það. Stemingin og umgjörð Fyrsti leikur í úrslitakeppni og stemningin eftir því. Mikill hávaði og læti í HS Orku-höllinni bara eins og við viljum hafa það á þessum skemmtilegasta tíma ársins Bónus-deild karla Grindavík UMF Njarðvík
Sjáðu slagsmálin í Grindavík: Stuðningsmenn stukku út á gólf og lögreglan skarst í leikinn Körfubolti
Sjáðu slagsmálin í Grindavík: Stuðningsmenn stukku út á gólf og lögreglan skarst í leikinn Körfubolti